Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 8
6 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
AF VETTVANGI STJÓRNMÁLANNA
Gengið var til forsetakosninga í níunda sinn
í 76 ára sögu lýðveldisins laugardaginn
27. júní 2020. Almenna reglan var lengi að
ekki væri stofnað til framboðs gegn sitjandi
forseta. Þetta breyttist í forsetatíð frú Vigdísar
Finnbogadóttur. Nú var í fjórða sinn boðið
fram gegn sitjandi forseta og í fyrsta sinn eftir
að hann hafði aðeins setið í eitt kjörtímabil.
Árið 1988 bauð Sigríður Þorsteinsdóttir úr
Flokki mannsins í Vestmannaeyjum sig fram
og fékk 5,3% atkvæða, Vigdís fékk 92,7% en
auð og ógild atkvæði voru 2%. Kjörsókn var
72% af tæplega 175.000 á kjörskrá.
Árið 2004 buðu Baldur Ágústsson (9,9%
af greiddum atkv.) og Ástþór Magnússon
(1,5%) sig fram gegn Ólafi Ragnari Grímssyni
(67,5%). Kjörsókn var dræm, aðeins 62,9%,
rúmlega 213.000 á kjörskrá.
Björn Bjarnason
Forsetakosningar -
þjóð- og efnahagslíf í skugga COVID-19
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var endurkjörinn forseti í níundu forsetakosningunum sem fram fór í lok júní.
Guðni hlaut 89,4% greiddra atkvæða (92,2% gildra atkvæða). (Mynd: VB/HAG)