Þjóðmál - 01.06.2020, Page 19
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 17
Kostnaður skattgreiðenda meiri
á Íslandi en í fjölmennari ríkjum
Það gefur augaleið að örríki eins og Ísland
ber hlutfallslega hærri kostnað af því að
halda uppi stofnanakerfi hins opinbera en
fjölmennari ríki. Hlutfallslegur kostnaður
skattgreiðenda af rekstri hinna ýmsu
stofnana er þannig mun meiri á Íslandi en
í fjölmennari ríkjum. Þetta birtist m.a. hjá
hinu opinbera í því að hlutfall stjórnenda
af starfsmönnum er hærra þar en almennt
á vinnumarkaði, eða 14%, sem er meira en
tvöfalt hærra en meðaltalið (6%).5 Mikilvægt
er í þessu samhengi að skilja á milli umræðu
um hagkvæmni annars vegar og þjónustu
hins vegar og ekki er dregið í efa mikilvægt
hlutverk sem margar ríkisstofnanir sinna,
heldur bent á að fórnarkostnaður smæðar-
innar er hér hærri kostnaður skattgreiðenda.
Með sameiningum smærri stofnana í stærri
rekstrareiningar má vinna gegn þessum
áhrifum, en ávinningur sameininga kom
skýrt fram árið 2013 í úttekt Samráðsvett-
vangs um aukna hagsæld á íslenska stofnana-
umhverfinu. Þar sýndu gögn að fjöldi og
smæð stofnana á Íslandi drægi úr sérhæfingu
starfsfólks og gæðum veittrar þjónustu. Að
stærri stofnanir hefðu meiri burði til þess að
sinna kjarnaverkefnum stofnananna og upp-
fylla kröfur stjórnsýslulaga. Smáar stofnanir
gætu jafnframt átt erfitt með að laða til sín
hæft starfsfólk, þar sem hætt væri við faglegri
einangrun og möguleikar á starfsframa innan
stofnunar væru takmarkaðir.6
Reynslan sýnir að vel útfærðar sameiningar
skila margvíslegum ávinningi, ekki síður
faglegum en fjárhagslegum. Fækkun
skattstjóraembætta úr tíu í eitt árið 2010
skilaði faglegum ávinningi: Afgreiðslutími
Mynd 2: Úr úttekt Samráðsvettvangsins um aukna hagsæld sem sýndi fram á kosti sameininga skattaembætta,
með uppfærðum árangurstölum úr erindi Ríkisskattstjóra á Viðskiptaþingi 2015
Sameining skattembætta sýnir að stærri stofnanir hafa meiri
burði til að veita góða þjónustu um allt land
Mælikvarðar sýna góðan árangur
Sameining leiddi til sérhæfingar starfsstöðva um allt land
▪ Embættum var fækkað úr tíu í eitt árið 2010
▪ Aukin sérhæfing og samnýting stoðþjónustu leiddi til betri þjónustu
og skilvirkari rekstrar
▪ Sameinað embætti náði þessum árangri samhliða samdrætti í
opinberri fjárveitingu
▪ 98% starfsfólks er sátt við sameininguna1
Atvinnurekstur
Einstaklingar
Símsvörun
2,5
8,0
Afgreiðslutími
kæra
mánuðir
-69%
Mælikvarði
eining
Gildi fyrir
sameiningu
Gildi eftir
sameiningu
13
3
Afgreiðslutími
erinda
mánuðir
-77%
3
12
Tekjur af eftirliti
milljarðar kr.
+300%
274
241
Starfsfólk
fjöldi
-12%
Breyting
2010-
2015
1 Könnun í desember 2012
1 Könnun í desember 2012
Heimild: Uppfærð glæra úr tillögum Samráðsvettvangs um aukna hagsæld með tölum frá ríkisskattsstjóra sem kynntar voru á Viðskiptaþingi 2015