Þjóðmál - 01.06.2020, Page 21
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 19
Fyrirætlanir um sameiningar
fóru niður í skúffu
Nú eru liðin sjö ár frá því að hagræðingar-
hópurinn lét til sín taka og hafa sumar
tillögur hans verið innleiddar þótt ekki
liggi fyrir heildaryfirlit um það. Mikilvægt er
að verkaskipting og dreifing stofnana sé í
reglubundinni skoðun og er fyllsta ástæða
til að fylgjast náið með árangri þeirra sem
sameinaðar hafa verið, t.d. embætti Tollstjóra
og Ríkisskattstjóra sem og Seðlabanka Íslands
og Fjármálaeftirlitsins. Ánægjulegt er að sjá
að í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar frá
því í ár um embætti ríkislögreglustjóra er m.a.
spurt hvort þeim kostnaði sem fer í rekstur
lögregluembætta landsins sé best varið í því
skipulagi sem nú er til staðar. Slík reglubundin
skoðun er nauðsynleg – í opinberum rekstri
sem og einkarekstri.
Varðandi sameiningu Samkeppniseftirlitsins,
Póst- og fjarskiptastofnunar, Neytendastofu
og raforkueftirlits Orkustofnunar er ljóst að
ekki var fallið frá málinu á þeim grunni að
óskynsamlegt væri að sameina umræddar
stofnanir – heldur þótti tímasetningin ekki
hentug. Nú eru breyttir tímar. Samdráttar-
skeið blasir við, útgjöld ríkisins og skuldir
stóraukast. Vissulega hefði verið heppilegra
að sameiningin hefði átt sér stað þegar
aðstæður á vinnumarkaði voru hagstæðari
atvinnuleitendum. En það leysir stjórnvöld
ekki undan þeirri skyldu að fara vel með
almannafé og bæta rekstur stofnana.
Tími skynsamlegra hagræðingartillagna
er kominn. Látum ekki þá góðu vinnu sem
unnin var í því dæmi sem hér var rakið fara í
súginn. Veldur hver á heldur og læra þarf af
þeim stjórnendum hins opinbera sem náð
hafa góðum árangri í sameiningum stofnana.
Höldum áfram og aukum skilvirkni og gæði í
opinberu eftirliti.
Höfundur er verkfræðingur og
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Tilvísanir:
1. Sjá hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar 2013: https://
www.stjornarradid.is/media/forsaetisraduneyti-media/
media/frettir2/tillogur-hagraedingarhops-11-nov.pdf
2. Sjá fýsileikagreiningu Capacent 2015: https://www.
stjornarradid.is/media/atvinnuvegaraduneyti-media/
media/acrobat/capacent-2015-fysileikagreining-se-pfs.
pdf
3. Sjá viðtal við iðnaðar- og viðskiptaráðherra hér: https://
www.ruv.is/frett/haetta-vid-sameiningu-thriggja-stofnana
4. Sjá til að mynda umsagnir Sýnar hf. og Símans við drög
að breytingum á fjarskiptalögum: https://samradsgatt.
island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2562
5. Launarannsókn Hagstofunnar, 2018
6. Sjá tillögur Samráðsvettvagns um aukna hagsæld:
https://www.stjornarradid.is/media/forsaetisraduneyti-
media/media/samradsvettvangur/fundargogn-samrads-
vettvangur-3-fundur-netid.pdf
6