Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 40
38 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Þurfum að endurskipuleggja
stjórnsýsluna
Í framhaldi af umræðu um eftirlitsiðnað
ríkisins, sem aðeins virðist vaxa, má velta því
upp hversu mikil umsvif hins opinbera geta
almennt verið. Það heyrir til algjörra undan-
tekninga að skattar og gjöld séu afnumin eða
lækkuð, að ríkisstofnun sé lögð niður eða að
ríkisstarfsmönnum fækki. Í framhaldinu er við
hæfi að velta því upp hvort nokkur mótstaða
sé við þennan vöxt meðal stjórnmálamanna.
„Ég vona að sú mótstaða sé til staðar, hún er
það í það minnsta í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins og það má einnig finna dæmi í
öðrum þingflokkum,“ segir Óli Björn.
„Ég myndi segja að þessi viðhorf séu til staðar
hjá Framsóknarflokknum og Mið flokknum.
Jafnvel að einhverju leyti hjá Viðreisn þótt
mér sýnist sá flokkur vera að þróast í átt til
systurflokksins, Samfylkingarinnar, með
sterkari hætti en maður hefði átt von á. En
það er rétt að halda því til haga að nokkur
árangur hefur náðst við fækkun stofnana.
Tollstjórinn og Ríkisskattstjóri runnu í eitt
embætti, Fjármálaeftirlitið hefur verið sameinað
Seðlabankanum, Nýsköpunarmiðstöð verður
lögð niður í lok þessa árs og dæmin eru fleiri.“
Óli Björn tekur þó undir að stjórnsýslan,
ráðuneytin og undirstofnanir, hafi vaxið
næstum stjórnlaust.
„Við þurfum að koma böndum á þennan
vöxt, endurskipuleggja stjórnsýsluna og gera
hana skilvirkari,“ segir Óli Björn.
„Við höfum tækifæri til þess og þá sérstaklega
með þeirri tækniþróun sem hefur átt sér stað
og er að eiga sér stað. Það væri fráleitt að ná
ekki tökum á stjórnsýslunni með þeim hætti.“
Í framhaldinu segir Óli Björn að hann vilji inn-
leiða hér hina svokölluðu fjórtán daga reglu,
þannig að fyrirtæki og einstaklingar sem leiti
til stjórnsýslunnar fái svar við erindum sínum
innan fjórtán daga.
„Það er vel hægt með þeirri tækni sem við
búum yfir í dag. Það er betra að fá neikvætt
svar, þegar svo ber undir, innan fjórtán daga
en að þurfa að bíða eftir já eða kannski í hálft
„Það þjónar til dæmis ekki hagsmunum almennings að ríkið eigi og reki tvo banka.
Það þjónar meiri tilgangi að bæta samgöngur víða um land, meðal annars í Reykjavík
[...] Það þjónar heldur ekki hagsmunum almennings að vera með tugi milljarða
bundna í flugstöð á Keflavíkur flugvelli þegar við vitum að einkaaðilar, bæði íslenskir
og erlendir, væru betur til þess fallnir að eiga og reka hana.