Þjóðmál - 01.06.2020, Síða 42
40 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Yfirburðavald Ríkisútvarpsins
skapar hættu
Óli Björn nefnir í framhaldinu að eitt af
þessum fyrirtækjum í eigu ríkisins sé sjálft
Ríkisútvarpið.
„Menn geta haft ýmsar skoðanir á tilveru
þess en ég mun sennilega ekki lifa þann dag
að ríkið hætti fjölmiðlarekstri,“ segir Óli Björn.
„Við tökum í dag fimm milljarða af skatt-
greiðendum á hverju ári til að setja í þennan
ríkisrekstur. En ef maður spyr spurninga og
veltir því fyrir sér hvernig þeim fjármunum er
ráðstafað, til viðbótar við þær tekjur sem ríkis-
fjölmiðill hefur af auglýsingamarkaði, er litið
á það sem einhverja árás á fjölmiðlafrelsi. Það
færi betur á því að nýta þessa fimm milljarða
til þess að gefa listamönnum og dagskrár-
gerðarmönnum úti um allt land kost á því að
fá styrki til að vinna dagskrárgerð um listir,
menningu, sögu, stjórnmál og afþreyingu.
Tæknin er orðin þannig að hver sem er getur
unnið vandað fjölmiðlaefni heima hjá sér.
Það væri betra að dreifa þessum fjármunum
til þúsunda einstaklinga úti um allt land en
að leggja þetta allt inn í Efstaleiti í Reykjavík.“
Við ræddum áðan hvort stjórnmálamenn væru
feimnir við að gagnrýna eftirlitsstofnanir. Gildir
mögulega það sama um gagnrýni á Ríkis-
útvarpið eða spurningar um rekstur þess?
„Þú getur sett þig í spor stjórnmálamannsins,
sem veit það að Ríkisútvarpið hefur
yfirburða stöðu þegar kemur að áhrifamætti
fréttaflutnings og þjóðmálaumræðunnar,“
segir Óli Björn.
„Það getur skipt töluverðu máli hvort Ríkis-
útvarpið segir frá því sem þú ert að segja
eða gera hér á þingi, hvort þú hefur náð fyrir
augum þessarar stofnunar til að komast í
helstu umræðuþætti og svo framvegis. Hvort
heldur þú að það sé líklegra að þú talir máli
þessarar stofnunar eða stígir fram og gagn-
rýnir hana? Menn hljóta að sjá hættuna
sem er fólgin í þessu yfirburðavaldi Ríkis-
útvarpsins.“
„... það er eitthvað bogið við það að við séum komin á þá braut að hér starfi sérstök
eftirlitsstofnun sem hefur það hlutverk að fylgjast með starfsemi fjölmiðla. [...]
Það verður til þess að umhverfi fjölmiðlanna verður óheilbrigðara með tímanum.