Þjóðmál - 01.06.2020, Page 43
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 41
Hann segir að horfast verði í augu við að
ekki hafi tekist að tryggja heilbrigðan farveg
fyrir sjálfstæða fjölmiðla hér á landi. Ein af
ástæðum þess sé að ekki hafi tekist að koma
böndum á rekstur Ríkisútvarpsins, sem fyrir
utan þær gífurlegu upphæðir sem það fær frá
skattgreiðendum er grimmur þátttakandi á
auglýsingamarkaði og tekur þar til sín rúma
tvo milljarða á ári.
„Nú er talið að lausnin við þessu sé að taka
upp styrktarkerfi fyrir sjálfstæða fjölmiðla,“
segir Óli Björn.
„Það skýtur skökku við að taka upp styrktar-
kerfi fyrir sjálfstæða fjölmiðla þegar til eru
aðrar mun betri leiðir. Sjálfstæðir fjölmiðlar
eru mikilvægir og það skiptir máli að hér sé
fjölbreytt flóra fjölmiðla. Það er þó ekki líklegt
að þeir veiti framkvæmda- og löggjafar-
valdinu aðhald eða eflist í gagnrýni sinni á
fjárveitingarvaldið sem skammtar þeim úr
hnefa.“
Gildir þá ekki það sama um Fjölmiðlanefnd,
sem hefur það hlutverk að útdeila styrkjunum?
„Jú, svo er nú annað mál að það er eitthvað
bogið við það að við séum komin á þá braut
að hér starfi sérstök eftirlitsstofnun sem
hefur það hlutverk að fylgjast með starfsemi
fjölmiðla,“ segir Óli Björn.
Hann segir eðlilegt að stuðla að rannsóknum
innan akademíunnar þegar kemur að
fjölmiðlum en allt annað að starfrækja sér-
staka stofnun sem sinnir eftirlitshlutverki og
í raun stjórnsýsluhlutverki sem gefur henni
vald til að leggja á stjórnvaldssektir samhliða
því að útdeila takmörkuðum fjármunum.
„Það verður til þess að umhverfi fjölmiðlanna
verður óheilbrigðara með tímanum. Það er
það sem ég óttast," segir Óli Björn að lokum.
gislifreyr@thjodmal.is