Þjóðmál - 01.06.2020, Page 47
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 45
Fjárfestingarsjóðir og
frumkvöðlafyrirtæki
Eitt af „tækjum“ fjármálamarkaðarins sem
styðja við nýsköpun eru svokallaðir áhættu-
fjármagnssjóðir (e. venture capital funds eða
VC-sjóðir).
Þetta hefur verið kallað á íslensku „vísissjóðir“
og dæmi um slíkan sjóð er vísissjóðurinn
Crowberry (crowberrycapital.com), sem er
rekinn af rekstrarfélaginu Crowberry Capital
GP í eigu þeirra Heklu Arnardóttur, Helgu
Valfells og Jennýjar Ruthar Hrafnsdóttur.
Crowberry I er 4 milljarða króna íslenskur
vísissjóður, stofnaður árið 2017 með 10 ára
líftíma. Hann er um 80% í eigu lífeyrissjóða.
Nýfjárfestingatímabil sjóðsins er 5 ár og
annar sjóður á þeirra vegum hugsanlega í
farvatninu.
Crowberry fjárfestir í nýjum tæknifyrirtækjum
á Norðurlöndum. Nýsköpun og tækni og
það hugvit sem beitt er virða ekki landamæri
heldur fylgja þekkingarklösum og verða oft
til við samvinnu þeirra. Það sama á við um
vísisfjárfesta; bestum árangri ná þeir sem
starfa meðfram þeim bestu á heimsvísu og
hafa metnað til þess að byggja upp stór
alþjóðleg tæknifyrirtæki.
Sjóðurinn hefur nú fjárfest í 12 tækni-
fyrirtækjum og mun fjárfesta í 2-3
fyrirtækjum til viðbótar. Þar af eru 25% á
sviði heilbrigðistækni, 25% í leikjaiðnaði og
17% í fjártækni. Annað er á hefðbundnari
hugbúnaðar- og tæknilausnum fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Það er athyglisvert í þeim heimsfaraldri sem
nú herjar að þessi fyrirtæki eru almennt
ekki að verða fyrir neikvæðum áhrifum eða
fækka starfsfólki, enda hafa stafrænar lausnir
í heilbrigðistækni aldrei verið eins þarfar og
nú og tölvuleikir eru svo sannarlega nýtt
form afþreyingar sem styttir fólki stundir við
núverandi aðstæður.
Hér er farið yfir nokkur af þeim fyrirtækjum
sem hafa sprottið upp á undanförnum árum.
Kara Connect
Eitt af þeim fyrirtækjum sem Crowberry hefur
fjárfest í er Kara Connect (karaconnect.com).
Sérfræðingar í heilbrigðis-, velferðar- og
menntakerfinu geta nýtt Kara Connect til
að eiga í samskiptum við skjólstæðinga
sína í gegnum myndfundi á netinu. Að auki
færir Kara Connect sérfræðingum stafræna
vinnu stöð sem einfaldar allan rekstur bæði á
netinu og í raunheimi.
Kara Connect hefur fimmtánfaldað fjölda
nýrra viðskiptavina frá febrúar til mars á
þessu ári, flestir þeirra eru erlendis og hefur
fyrirtækið náð talsverðri fótfestu þar þrátt
fyrir dræmari og erfiðan uppgang á Íslandi.
Hefur framkvæmdastjórinn Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir m.a. flutt til útlanda þess vegna.
Kara Connect er dæmi um félag sem hefur
fengið styrki frá Rannís og Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins hefur fjárfest í félaginu.
Stjörnu-Oddi
Fyrirtækið Stjörnu-Oddi (star-oddi.com)
framleiðir veirurannsóknarmæla fyrir
dýr. Fyrirtækið hefur starfað í þessum
rannsóknargeira síðan 1993, en áður í þróun
farsíma. Í leitinni að bóluefni gegn COVID-19
er helst stuðst við rannsóknir á mörðum,
enda öndunarfæri þeirra lík öndunarfærum
manna. Hefur fyrirtækið vart undan að
framleiða mæla til notkunar hjá erlendum
ríkisstofnunum, lyfjafyrirtækjum, háskólum
og rannsóknarstofnunum.
Í öndunarfærarannsóknum, eins og á
COVID-19, eru helst stundaðar rannsóknir á
mörðum. Samkvæmt lögum verða prófanir
á dýrum að hafa átt sér stað áður en hægt er
að prófa á fólki. Þessi litlu mælar eru settir í
dýrin áður en þau eru sýkt með veiru. Með
þessum mælum er hægt að fá tugþúsundir
mælinga úr líkama dýrsins, svo sem hitastig,
rafboð hjartans og fleira.
Hjá Stjörnu-Odda starfa 23. Sigmar
Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri og
stofnandi félagsins, hefur af ótrúlegri elju-
semi unnið að uppbyggingu þess. Sigmar
telur að faraldurinn sem ríður nú yfir muni