Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 49
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 47
NeckCare
Íslenska fyrirtækið NeckCare Holding ehf.
selur veflægar greiningar og endurhæfingar-
lausnir á hreyfiskaða. Búnaðurinn frá Neck-
Care er sá eini sinnar tegundar í heiminum
og getur hann mælt hreyfingu á hálsi og baki
með mikilli nákvæmni. NeckCare gerir sjúkra-
þjálfurum mögulegt að fylgjast með því
hvort sjúklingar eru að sinna endurhæfingar-
áætlun, s.s. heimaæfingum sem sjúkra-
þjálfarinn setur þeim fyrir, auk þess sem
mögulegt er að bjóða upp á fjarsjúkraþjálfun.
Félagið hefur fengið styrk frá bandaríska
flughernum. Um 80% af þeim flugmönnum
sem hafa lokið störfum hjá bandaríska flug-
hernum hafa hlotið krónískan hálsskaða
sökum starfa sinna. Kim De Roy er einn af
eigendum NeckCare Holding. Hann kom
nýlega inn í eigendahóp fyrirtækisins, en
áður starfaði hann sem forstöðumaður
rannsókna og þróunar hjá Össuri. Þor-
steinn Geirsson er einn eigenda og fram-
kvæmdastjóri NeckCare. Nokkrum sinnum
var fjallað ítarlega um þetta fyrirtæki í
Viðskiptablaðinu.
Stöndum saman með
sjálfbærni að leiðarljósi
Hér hafa verið nefnd örfá dæmi um fyrirtæki
sem hafa þróað upplýsingakerfi, hugbúnað
eða tækjabúnað sem tengist heilbrigðis tækni,
íslensku heilbrigðiskerfi eða íslenskum
fjárfestum. Stærri fyrirtæki eins og Össur,
Alvogen, Alvotech og Decode/Íslenska erfða-
greiningu þekkja allir, en svo má nefna Genis,
Kerecis, Niblegen, Nox Medica, Oculis, Orf
líftækni, Oxymap, Mentis Cura, Zymetech og
mörg fleiri sem ekki síður hefði verið gaman
að fjalla um hér. Með samstarfsvettvang
á borð við heilbrigðis - og líftækniklasa og
jafnvel enn útvíkkaðri klasa nokkurs konar
verkfræði og líftæknikjarna gætu fyrirtæki
unnið saman og verið jarðvegur fyrir frekari
grósku á þessu sviði. Tækifærin eru víða og
þá sérstaklega til vaxtar erlendis og þar með
aukinna útflutningstekna.
Fjölmörg dæmi eru um fyrirtæki sem hafa
verið að spretta upp á undanförnum árum
og eiga góða möguleika að vaxa og skapa
miklar tekjur og atvinnu fyrir þúsundir
Íslendinga innanlands og erlendis. Fjölbreytni
í háskólastarfi hér á landi samhliða viðvarandi
og vaxandi framhaldsmenntun og atvinnu-
þátttöku Íslendinga erlendis hefur aukið
slagkraft atvinnulífs og vísindasamfélags.
Nauðsynlegt er að tryggja komandi
kynslóðum lífsgæði og spennandi störf svo
að fólk kjósi áfram að búa og starfa á Íslandi.
Þau störf verða að vera þokkalega vel launuð
og ekki líklegt að það gerist nema að nokkru
leyti í núverandi atvinnustarfsemi, sem er mjög
auðlindadrifin og margar auðlindir takmarkaðar
ef tryggja á sjálfbærni og varðveita náttúruna.
Mikilvægt er að byggja upp fjölbreytt atvinnu-
líf sem skapar verðmæti með útflutningi,
hvort sem um er að ræða vörur eða þjónustu.
Íslandsstofa tók sem dæmi að til að standa
undir 3% hagvexti næstu 20 árin þarf íslenskt
þjóðarbú að auka útflutning um 1.000
milljarða eða jafnt dreift um einn milljarð
á viku. Og það er ekki sama hvernig það er
gert. Langstærsti hluti þessarar aukn ingar
verður að koma með nýrri nálgun og þá með
nýsköpun í núverandi greinum og ekki síst í
nýrri atvinnustarfsemi.
Nauðsynlegt er að tryggja komandi
kynslóðum lífsgæði og spennandi
störf svo að fólk kjósi áfram að búa
og starfa á Íslandi.