Þjóðmál - 01.06.2020, Page 58
56 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Fyrirtæki í sérflokki
IBM á Íslandi laut ströngum reglum
móðurfyrirtækisins. Reikningshald var með
fastmótuðum hætti og niðurstöður þess varð
að senda mánaðarlega til aðalstöðvanna í
París og engu mátti skeika frá fyrirframgefnum
dagsetningum. Allir starfsmenn urðu að lesa
og staðfesta að þeir hefðu lesið siðareglur
IBM og reglur giltu um klæðaburð. Félagið
vildi tryggja starfsmönnum öryggi og þar
með kjölfestu í lífi þeirra svo lengi sem þeir
óskuðu þess, að því gefnu að þeir stæðu sig
í starfi. Laun voru persónubundin og lögð
áhersla á að hver starfsmaður hefði frelsi til
að semja um sín laun. Þetta var byltingarkennd
nýjung á þeim tíma þegar kjör launafólks
voru njörvuð niður í kjarasamningum.
Erlendir sérfræðingar voru fengnir til að
kenna kerfisfræði og forritun, en engin
kennsla í þessum fögum fór þá fram í skólum
hérlendis. Nýráðnir starfsmenn voru sendir á
námskeið í skólum IBM í Svíþjóð, Belgíu, Dan-
mörku, Bretlandi og Bandaríkjunum. Brátt
hafði myndast svo mikil þekking að kerfis-
fræðideildin var þess umkomin að veita full-
komna fræðslu um búnað IBM fyrir íslenskan
markað. Fyrirtækið tók í byrjun ekki gjald fyrir
kerfisaðstoð og þjónustu við uppsetningu
tækja. Allt var innifalið í leiguverði vélanna.
Viðskiptavinir urðu því kröfuharðir þrátt fyrir
að lengi vel væri ekki um neina samkeppni
að ræða á þessum markaði hérlendis.
IBM á Íslandi yfirtók meðal annars rekstur
Skýrsluvinnslu Ottós A. Michelsen sem
stofnuð var 1963. Hún byggði á því að
viðskiptamenn komu með gögn sín í formi
skjala sem sett voru á gataspjöld til frekari
úrvinnslu. Gataspjaldavélarnar voru mataðar
handvirkt á þeim tíma og þetta var því mikið
nákvæmnisverk. Minnsta yfirsjón gat leitt til
villna í niðurstöðum. Nýir viðskiptavinir IBM
byrjuðu með verkefni í þessari úrvinnslu-
þjónustu en leigðu síðan eða keyptu
Mynd frá því í desember 1963 þegar samningar voru undirritaðir um tölvu Háskóla Íslands. Ottó situr vinstra megin og
gegnt honum Ármann Snævarr háskólarektor. Standandi frá vinstri: Trausti Einarsson, Magnús Magnússon og Jóhannes
L.L. Helgason háskólaritari (Ljósm. Ingimundur Magnússon).