Þjóðmál - 01.06.2020, Page 75

Þjóðmál - 01.06.2020, Page 75
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 73 fjölskyldan aldrei byrði á Íslendingum. Dóms- málaráðherra synjaði beiðni hans.8 Hinn 12. mars 1943 fór Pulvermacher ásamt tæplega 1.000 öðrum Gyðingum með „sendingu 36“ frá Berlín til Auschwitz, þar sem hann var myrtur við komuna í búðirnar.9 Meðal annarra farþega í sendingu 36 má nefna Siegbert Rosenthal (f. 1899), bróður Hennýjar Goldstein og Harrys Rosenthals, ásamt konu hans Ernu (f. Baerwald, 1901) og ungum syni þeirra, Denny (f. 1939).10 Erna og Denny voru myrt í Auschwitz en Siegbert var fluttur til Natzweiler-Struthof fangabúðanna nærri Strassborg þar sem hann og 85 aðrir Gyðingar voru myrtir á hroðalegan hátt 2. ágúst 1943. Nota átti beinagrindur þeirra í mannfræðisafn sem sýna ættu einkenni „undirmálsfólks“ á vegum rannsóknar- stofnunar svartliðsins, Ahnenerbe, við Háskólann í Strassborg.11 Margir umsækjendur frá Berlín virðast hafa orðið eftir í borginni þegar þýsku landamærin lokuðust haustið 1941. Þeir virðast hafa verið meðal þeirra 15.000 Gyðinga sem björguðu lífi sínu fram í nóvember 1942 með því að vinna hörðum höndum í verksmiðjum í Berlín. Fólk þetta var talið „nauðsynlegt vinnuafl“ og komst því jafnan hjá brottflutningi austur. „Sending 23“ í nóvember 1942 var fyrsta ferðin í nýju átaki sem átti að hreinsa Berlín af eftirlifandi Gyðingum. Hámark þess var svokölluð Fabrik Aktion (verksmiðjuaðgerð) í febrúar og mars 1943.12 Málavextir voru þeir að 20. febrúar 1943 gaf SS-foringinn Adolf Eichmann út skipun um að eftirstandandi Gyðingar, sem áður hefðu komist hjá brottflutningi vegna starfa í mikil vægum verksmiðjum, yrðu nú sendir austur eins og aðrir, að undanskildum einstaklingum í blönduðum hjónaböndum og börnum þess háttar foreldra, samkvæmt fyrirmælum frá æðstu leiðtogum nasista. Viku síðar réðust hermenn úr lífvarðarsveit Adolfs Hitlers, SS-Leibstandarte, til atlögu og hreinsuðu fólk úr verksmiðjunum með svipur og byssustingi að vopni. Á sama tíma fóru lögreglusveitir á stjá í Berlín og tóku með sér alla Gyðinga sem þær fundu og máttu hand- taka samkvæmt fyrirmælum leiðtoganna. Fólk þetta var flutt í nokkrar söfnunarbúðir þar sem það var geymt uns hægt væri að senda það til Putlitzstrasse-lestarstöðvarinnar í Moabit-hverfinu. Þar var fólkið skráð og flutt um borð í gripaflutningalestir undir svipuhöggum. Hinn 2. mars 1943 sóttu SS-liðar um 1.500 fanga í fjórar söfnunarbúðir í Berlín og fluttu þá um borð í gripaflutningalest á Putlitzstrasse- stöðinni, þar sem um 300 aðrir Gyðingar biðu, þeirra á meðal um 220 manna hópur sem var nýkominn frá Noregi. Samtals voru um 1.830 Gyðingar nafngreindir á farþegaskrám þessarar ferðar, sem taldist vera „sending 32“ í skrám þýskra embættismanna. Við komuna til Auschwitz sendu SS-verðir 535 karla og 145 konur í þrælkunarvinnu en aðrir fóru beint í gasklefana í Auschwitz-Birkenau II. Erna Rosenthal (f. 1901) með syni sínum, Denny (f. 1939). Erna og Denny voru myrt í Auschwitz en eiginmaður hennar, Siegbert, var fluttur til Natzweiler-Struthof fangabúðanna nærri Strassborg þar sem hann og 85 aðrir Gyðingar voru myrtir á hroðalegan hátt 2. ágúst 1943.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.