Þjóðmál - 01.06.2020, Qupperneq 75
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 73
fjölskyldan aldrei byrði á Íslendingum. Dóms-
málaráðherra synjaði beiðni hans.8 Hinn 12.
mars 1943 fór Pulvermacher ásamt tæplega
1.000 öðrum Gyðingum með „sendingu 36“
frá Berlín til Auschwitz, þar sem hann var
myrtur við komuna í búðirnar.9
Meðal annarra farþega í sendingu 36 má
nefna Siegbert Rosenthal (f. 1899), bróður
Hennýjar Goldstein og Harrys Rosenthals,
ásamt konu hans Ernu (f. Baerwald, 1901) og
ungum syni þeirra, Denny (f. 1939).10 Erna og
Denny voru myrt í Auschwitz en Siegbert var
fluttur til Natzweiler-Struthof fangabúðanna
nærri Strassborg þar sem hann og 85 aðrir
Gyðingar voru myrtir á hroðalegan hátt 2.
ágúst 1943. Nota átti beinagrindur þeirra
í mannfræðisafn sem sýna ættu einkenni
„undirmálsfólks“ á vegum rannsóknar-
stofnunar svartliðsins, Ahnenerbe, við
Háskólann í Strassborg.11
Margir umsækjendur frá Berlín virðast hafa
orðið eftir í borginni þegar þýsku landamærin
lokuðust haustið 1941. Þeir virðast hafa verið
meðal þeirra 15.000 Gyðinga sem björguðu
lífi sínu fram í nóvember 1942 með því að
vinna hörðum höndum í verksmiðjum í Berlín.
Fólk þetta var talið „nauðsynlegt vinnuafl“
og komst því jafnan hjá brottflutningi austur.
„Sending 23“ í nóvember 1942 var fyrsta
ferðin í nýju átaki sem átti að hreinsa Berlín
af eftirlifandi Gyðingum. Hámark þess var
svokölluð Fabrik Aktion (verksmiðjuaðgerð) í
febrúar og mars 1943.12
Málavextir voru þeir að 20. febrúar 1943 gaf
SS-foringinn Adolf Eichmann út skipun um
að eftirstandandi Gyðingar, sem áður hefðu
komist hjá brottflutningi vegna starfa í
mikil vægum verksmiðjum, yrðu nú sendir
austur eins og aðrir, að undanskildum
einstaklingum í blönduðum hjónaböndum
og börnum þess háttar foreldra, samkvæmt
fyrirmælum frá æðstu leiðtogum nasista.
Viku síðar réðust hermenn úr lífvarðarsveit
Adolfs Hitlers, SS-Leibstandarte, til atlögu og
hreinsuðu fólk úr verksmiðjunum með svipur
og byssustingi að vopni. Á sama tíma fóru
lögreglusveitir á stjá í Berlín og tóku með sér
alla Gyðinga sem þær fundu og máttu hand-
taka samkvæmt fyrirmælum leiðtoganna.
Fólk þetta var flutt í nokkrar söfnunarbúðir
þar sem það var geymt uns hægt væri að
senda það til Putlitzstrasse-lestarstöðvarinnar
í Moabit-hverfinu. Þar var fólkið skráð og
flutt um borð í gripaflutningalestir undir
svipuhöggum.
Hinn 2. mars 1943 sóttu SS-liðar um 1.500 fanga
í fjórar söfnunarbúðir í Berlín og fluttu þá
um borð í gripaflutningalest á Putlitzstrasse-
stöðinni, þar sem um 300 aðrir Gyðingar biðu,
þeirra á meðal um 220 manna hópur sem
var nýkominn frá Noregi. Samtals voru um
1.830 Gyðingar nafngreindir á farþegaskrám
þessarar ferðar, sem taldist vera „sending 32“
í skrám þýskra embættismanna. Við komuna
til Auschwitz sendu SS-verðir 535 karla og
145 konur í þrælkunarvinnu en aðrir fóru
beint í gasklefana í Auschwitz-Birkenau II.
Erna Rosenthal (f. 1901) með syni sínum, Denny (f. 1939).
Erna og Denny voru myrt í Auschwitz en eiginmaður
hennar, Siegbert, var fluttur til Natzweiler-Struthof
fangabúðanna nærri Strassborg þar sem hann og 85 aðrir
Gyðingar voru myrtir á hroðalegan hátt 2. ágúst 1943.