Þjóðmál - 01.06.2020, Page 78
76 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Magnús Lyngdal Magnússon
Af nokkrum
þekktum hljóðritunum
Klassísk tónlist
Bruckner með Celibidache
Rúmenski hljómsveitarstjórinn Sergiu
Celibidache var ólíkindatól. Hann neitaði að
gera hljóðritanir og krafðist óheyrilega mikils
æfingatíma með hljómsveitum sem hann
stjórnaði (dæmi voru um að hann fengi sjö
til níu æfingadaga með Lundúna sinfóníunni
(LSO) þegar aðrir urðu að gera sér í mesta lagi
þrjá daga að góðu). Á seinni hluta ferils síns
stýrði hann Fílharmóníusveitinni í München
og eftir að Celibidache lést árið 1996 fóru að
koma út tónleikaupptökur sem hafa opnað
nýjan heim í túlkunum á verkum tónskálda
á borð við Tchaikovsky og Bruckner. Celibid-
aches verður einmitt helst minnst fyrir
ótrúlega túlkun sína á verkum Bruckners,
sem er afar ólík meginstraumi túlkana
annarra hljómsveitarstjóra. Það er ekki bara
að túlkun Celibidaches sé hægari en gengur
og gerist, það er í henni ljóðræna sem heyrist
ekki annars staðar. EMI/Warner hefur gefið út
sinfóníur nr. 3-9 (Celibidache neitaði að
stjórna nr. 1 og 2) ásamt messu nr. 3 og Te
Deum. Hlustið á niðurlagið (Coda) í lokaþætti
4. sinfóníunnar sem Celibidache tekur rúmar
fimm mínútur í, þ.e.a.s. tempóið er helmingi
hægara en hjá öðrum hljómsveitarstjórum.
Hljóðritanir á klassískri tónlist skipta tugum
þúsunda og þær sem standa sérstaklega upp
úr skipta sjálfsagt hundruðum. Þó eru nokkrar
upptökur sem allir sem leggja sig eftir klassískri
tónlist ættu að þekkja. Hér í þessari grein hef
ég valið þá leið að minnast á 10 slíkar en
listinn gæti hæglega innihaldið að minnsta
kosti 50 titla – fyrir utan þá staðreynd að um
svona lista má alltaf deila. Einhvers staðar
verðum við þó að byrja og allar þessar
upptökur má nálgast á helstu streymisveitum,
svo sem á Spotify, Idagio og Tidal.
Listinn er ekki í sérstakri röð og hér er ekki gert
upp á milli hljóðritana, heldur tíndar til tíu
upptökur sem standa mér nærri og hafa fylgt
mér lengi. Sumar þeirra eru umdeildar (t.a.m.
Bruckner með Celibidache og (seinni) Goldberg-
tilbrigðin með Gould) en aðrar njóta
óskoraðrar hylli (t.a.m. Beethoven og Brahms
með Kleiber). Þá eru upptökur á listanum
sem hafa nokkurs konar „költ-status“ í heimi
klassískrar tónlistar (þ. á m. Elgar með du Pré/
Barbirolli og Puccini með de Sabata).