Þjóðmál - 01.06.2020, Síða 79
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 77
Tchaikovsky með Mravinsky
Það er til urmull af hljóðritunum af verkum
Tchaikovskys, enda eitt vinsælasta tónskáld
veraldar. Fáar útgáfur af seinni þremur
sinfóníum hans (nr. 4-6) njóta þó hylli á
borð við þá sem Evgeny Mravinsky stjórnaði
og gerð var árið 1960 í frægri heimsókn
Fílharmóníu sveitarinnar í Leníngrad (nú St.
Pétursborg) til Bretlands. Túlkunin er mjög
„rússnesk“, þ.e.a.s. hún er hröð og gróf, en
hún inniheldur um leið ákafa sem oft vill
vanta í túlkunum annarra hljómsveitarstjóra.
Spilamennskan er fyrsta flokks og upptakan
er mikilvægur minnisvarði um þá ótrúlegu
hljómsveit sem Mravinsky byggði upp í
Sovétríkjunum en heyrðist því miður allt of
sjaldan á Vesturlöndum.
Beethoven með Kleiber
Talandi um sérstaka hljómsveitarstjóra, þá
má segja að enginn í veröldinni hafi notið
jafn mikillar hylli og Carlos Kleiber. Gallinn var
sá að hann fékkst nánast aldrei til að stjórna,
þess þá heldur til að gera hljóðritanir. Sú saga
var sögð af honum að hann stjórnaði bara
þegar fór að vanta mat í frystikistuna hjá sér
og Karajan lét hafa eftir sér að frystikistan hjá
Kleiber væri djúp – í hana vantaði aldrei mat.
Á löngum ferli sínum stjórnaði hann innan við
100 hljómsveitartónleikum og rúmlega 400
óperusýningum og efnisskráin var ekki stór
(Tristan und Isolde, Otello, La traviata, La
bohème, Der Freischutz, Elektra, Carmen, Der
Rosenkavalier og Die Fledermaus í óperu-
húsinu og Beethoven 4, 5, 6, 7 og Coriolan-
forleikurinn, Brahms 2 og 4, Mozart 36,
Schubert 3 og 8, Dvorák píanókonsertinn
með Richter, Vínartónleikar á nýársdag með
Vínarfílharmóníunni og örfá fleiri verk í tón-
leikasalnum). Á árunum 1975 og 1976 komu
út hljóðritanir á 5. og 7. sinfóníu Beethovens
með Vínarfílharmóníunni og Kleiber sem
allt frá útgáfudegi hafa þótt þær bestu sem
fáanlegar eru af þessum verkum. Það er ekki
lítið afrek, enda sennilega mest hljóðrituðu
verk tónlistarsögunnar.
Brahms með Kleiber
Á pari við Beethoven 5 og 7 kom Brahms 4 með
Kleiber og Vínarfílharmóníunni út árið 1981, en
þetta var síðasta stúdíóhljóðritunin sem Kleiber
gerði með umræddri hljómsveit. Það er sama
orka í túlkun Kleibers á Brahms og Beethoven,
og þetta er upptaka sem margir sverja við.