Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 41
Plíníus íslands
Um myndverk Jóns lærða
Þess hefur þegar verið getið, að öll myndverk Jóns lærða, nema teikningar í handritum hans,
séu týnd og tröllum gefín. Samt vill svo til að fmna má í heimildum lýsingar á myndverki
hans og útskurði í Hjaltastaðakirkju:
Úr Ferðabók Olaviusar (1780).
„Þar sem hins nafnkunna íslenska bónda, Jóns Guðmundssonar [lærða] hefur verið getið í
Ferðabók Eggerts og Bjama, og hann er enn bæði lærðum og leikum í fersku minni, vona
ég að það verði ekki tekið illa upp, þótt ég geti hans lítils háttar, því að í kirkjunni á Hjalta-
stað sá ég altaristöflu, sem hann hafði skorið út. Hún er ferhyrnd að neðan, en myndaði
þríhyrning að ofanverðu, og stóð þar orðið Jehovah. Neðan undir því var rnynd af sól og
tungli. Á miðri töflunni var sýndur Kristur á krossinum, en undir hinum útteygðu hand-
leggjum vom fuglar tveir, sem héldu hvor á sínum bikar, sem blóðið var látið streyma í, út
frá báðum olnbogabótum. Undir krossinum stóðu þau Jóhannes og María, en skammt frá
var beinagrind dauðans og mynd af höggormi, Serpens tortuosus. Þetta var allt snoturlega
skorið, og minnti á gott myndhöggvarasmíði, og ber það ásamt málverkinu yfír kórdyrum
og á prédikunarstólnum, er sami maður hefur gert, vitni urn listfengi eftir þeirra tíma hætti,
og öll myndin sýndi, að höfundur hennar hefur ekki hneygzt svo mjög til páfavillu, sem
venjulega er talið... Aftan á altaristöfluna er skorið: Jón Guðmundsson. Etatis 69. 1643.“
(Ferðabók Olaviusar, II, 232. Rvík 1965).
Úr fornleifaskýrslu Hjörleifs Þorsteinssonar, dags. 25. júlí 1818.
„Á prédikunarstólnum eru 11 kantar. Á 6 af þeim er stór mannsmynd á hvörn úthöggvin, en
á hina 5 eru negld spjöld, á hvörjum virðast fyrirstillt nokkur sérleg atriði úr Jesú lífssögu.
Á því fyrsta eru 5 úthöggnar myndir, hvar Frelsarinn er fyrirstilltur reyrður við stólpa, með
hendur bundnar á bak aftur, en 2 standa sinn hvoru megin með reiddar svipur. Þar undir
er með stórum latínskum stöfum úthöggvið: Geiselung. Matth.: XXVI. A öðru spjaldinu
eru 16 úthöggnar myndir, og sýnist líkast þar eigi að fyrirstillast Frelsarans fæðing, þar
dúfúmynd sýnist vera upp yfír miðpersónunni. Á því 3ja eru 12 úthöggnar myndir, hvar
einn situr á stól í miðjunni, og sinn lúðurþeytari við hvörja hlið, en þar fyrir neðan standa
karlmaður og kvenmaður sitt hvöru megin; milli þeirra eru 4 barnamyndir úthöggnar. Á því
4ða eru 9 myndir, hvar einn er að þrýsta þymikórónu ofan á Frelsarann, en annar heldur á
reirstafnum og reiðir til höggs; þar neðan undir stendur með úthöggnum latínskum stöfum:
Krömmg. Matth. XXVII. Á því 5ta eru 7 mannsmyndir, hvar einn stendur efstur, en 3 liggja
flatir fyrir fótum hans. Ofantil á hvörju af þessum 5 spjöldum eru 2 úthöggnar myndir
með vængjum, en fyrir ofan spjöldin er skipt á kantana þessum orðum, með úthöggnum
latínskum stöfurn: Verbum Domini manet in œternumX (Sveinbjörn Rafnsson (útgefandi):
Frásagnir um fornaldarleifar 1. 49-50.
Athugasemd útgefanda (neðanmáls): „Ekki verður séð að nokkur þessara kirkjugripa sé nú varðveittur í
Þjóðminjasafni. Prédikunarstóllinn er talinn eftir Jón Guðmundsson lærða hjá O. Olaviusi: Oeconomisk Reise
igiennem... lsland. Kh. 1780, bls. 629.“
39