Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Síða 69
Útlagi borgaralegs þjóðfélags
Lúðvik Jósepsson, Jóhannes Stefánsson og Bjarni Þórðarson framan við Gúttó.
Kaffikvöld í Gúttó
Sama dag og Austnrlandkom út, 7. nóvember
1942, var haldið kaffíkvöld á Norðfírði í til-
efni 25. ára afmælis Októberbyltingarinnar
(eða Sovétlýðveldanna eins og þama er sagt).5
Skemmtanir á Norðfirði vom ýmist í Gúttó
eða í Barnaskólahúsinu, sem var stærra. Þessi
var í Gúttó. í frétt í Austurlandi er skrifað,
að áhugaverðasti þáttur dagskrárinnar verði
efalaust frásögn Hallgríms Hallgrímssonar um
borgarastyrjöldina á Spáni. Margir höfðu til-
kynnt komu sína á kaffíkvöldið. Guðmundur
Sigurjónsson var þar, það var húsfyllir. Lúðvík
Jósepsson, Bjarni Þórðarson og Jóhannes
Stefánsson voru mættir. Hallgrímur las upp
úr nokkmm köflum í bók sinni, Undirfána
lýðveldisins, sem komið hafði út árið áður
og segir frá þátttöku hans í borgarastríðinu
á Spáni. Dansað var á eftir, hljómsveit og
harmónika. Ekki var dmkkið á þessari sam-
komu.
Hallgrímur var hraustlegur maður, segir
Þórður, bróðir Bjarna, ritstjóra. Þórður var
einnig á skemmtuninni. Hallgrímur var þarna
að efla liðsandann, og vissulega voru ástæður
til að fagna. Sósíalistaflokkurinn hafði stór-
aukið fylgi sitt í tvennum alþingiskosningum á
árinu, þingmannafjöldinnjókst úr 3 í 6 í sumar-
kosningunum og úr 6 í 10, þegar kosið var
um haustið. Nú fóru margir af félögum Hall-
gríms á þing, Aki, Brynjólfur og Einar, Krist-
inn E. Andrésson, Lúðvík Jósepsson, Sigfús
Sigurhjartarson, Sigurður Guðnason í Dags-
brún, Sigurður Thoroddsen, verkfræðingur,
Steingrímur Aðalsteinsson úr Glerárþorpi,
baráttufélaginn úr Krossanesverkfallinu,
67