Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 98
Múlaþing
Mikið er um fléttugróður sem skófir á
klöppum og í klettum í Seley. Út frá myndum
sem ég tók aðstoðaði mig Hörður Kristinsson
grasafræðingur við að spá í nokkrar áberandi
tegundir, sjá m.a. umtjöllun um náttúruminjar
og viðkomandi myndtexta. A sama hátt
greindi Karl Gunnarsson þörungafræðingur
sýnishorn af grænþörungi Enteromorpha
intestinalis sem ég tók með úr Seleyjartjörn.
í smápolli á kletti í Seley sá ég blóðþörung
(Haematococcus pluvialis). Þetta er ein-
frumungur, nánar tiltekið svipuþörungur og
dvalarform hans, svonefndar akínetur, hafa
um sig hjúp af rauðu litarefni.
Seley sem útver
Seleyjar er getið í máldögum kirkna allt frá
14. öld, m.a. átti Valþjófsstaðarkirkjaþriðjung
í hval í Seley.191 FerðabókEggerts ogBjarna
frá 1757 er Seleyjar getið stuttlega og þar sagt
vera útræði og sjófuglavarp.20 Olafur Olavius
sem fór um Austurland tveimur áratugum
síðar getur Seleyjar á nokkmm stöðum.21 Segir
hann þar vera mjög brimótt „þótt þar hafi
fyrmm verið 10 verbúðir og 5 þeirra séu enn
notaðar af Reyðfirðingum. Þar er engin möl til
fiskþurrkunar.... Miðin umhverfis Seley heita
Eyri, Hellir, Yde og Boðahálsar; eru þau öll
nálægt Vi mílu undan landi og dýpið á þeim
50-80 faðmar. ... Á Seleyjarmiðum veiðist
venjulega flyðra milli páska og Jónsmessu ...
Talið er að menn hafi fyrrum notað setafæri
eða handfæri til hákarlaveiði við Seley
Gyða Thorlacius sýslumannsfrú á Helgu-
stöðum 1801-1814 minnist í endurminn-
ingum sínum á hákarlaveiði í Seley.22 Hún
var sumarið 1814 að búast til brottfarar, en
eiginmaður hennar, Þórður sýslumaður, hafði
þá fengið veitingu fýrir Ámessýslu og var
kominn suður. Hún lýsir góðviðrisdögum
við Reyðarfjörð og síðan segir í endurminn-
ingunum:
í öðru eins veðri má eiga það víst, að góður
afli er við Seley, og svo koma bátarnir
næsta laugardag hlaðnir af fiski með 1,
19 Múlasýslur. Sýslu- og sóknalýsingar, s. 146 og 167. 22 Gyða Thorlacius. Endurminningar fru Gyðu Thorlacius, s.
20 Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar II, s. 85. 112-113.
21 Ólafur Olavius. Ferðabók II, s. 149-156.
Árabáturinn Brimill sjósettur á Krossanesi 1932. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Eskijjarðar.
96