Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 102
Múlaþing
Minjar í Hjallsbyggð. Uppdráttur: Guðmundur Ó. Ingvarsson eftir forskrift Guðnýjar Zoega.
eru á, en heimilt er þó að friðlýsa yngri minjar.
Samkvæmtþjóðminjalögumnr. 107 fráárinu
2001 er skylt að fomleifaskráning fari fram
áður en gengið er frá svæðisskipulagi, aðal-
skipulagi eða deiliskipulagi eða endurskoðun
þess og skal sá sem ber ábyrgð á skipulagsgerð
í samræmi við skipulagslög standa straum af
kostnaði við skráninguna. Mikill misbrestur
er á að við þessi lagaákvæði sé staðið og
hafa sveitarstjórnir borið fyrir sig kostnað af
skráningu. Slíkt ástand er óverjandi í landi
sem vill telja sig til menningarsamfélaga.
Til fomleifa teljast m.a. leifar af verbúðum,
naustum og verslunarstöðum svo og vinnu-
staðir þar sem aflað var fanga, svo sem ver-
stöðvar. Fjölmargt hefur glatast af fomleifum
á liðinni öld og þær eru enn að tína tölunni
sökum vanrækslu. Þetta á m.a. við um minjar
skammt ofan ljömborðs vegna sjávarrofs og
hækkandi sjávarstöðu. Skráning fomleifa á
Austurlandi er því miður skammt á veg komin
og tilviljanakennd. Þetta á m.a. við um minjar
sem tengjast sjósókn og útgerð fyrr á tíð og
sem em hluti af svonefndum strandminjum.
Fyrir nokkrum árum benti Geir Hólm mér á,
að í Seley væru merkar minjar sem hugsanlega
lægju undir skemmdum af sjávarrofi og létu
undan tímans tönn. I framhaldi af því talaðist
svo til milli mín og Guðnýjar Zoega að efna
í Seleyjarferð með Geir Hólm sem leiðsögu-
mann. Uppskera forleifaskráningarinnar hefúr
þegar birst í sérstakri skýrslu sem Guðný er
höfundur að og er hér stiklað á helstu niður-
stöðum hennar með stuðningi af uppdráttum
og ljósmyndum.30
Fornleifar í Seley
A gróðurtorfunum þremur í Seley, Hjalls-
byggð, Byggðarholti og Bóndavörðuholti, eða
í grennd þeirra fundust allar minjamar sem
skráðar voru, alls 26 talsins. Þar af eru ijórar
horfnar eða 15% skráðra minja. Minjamar
tengdust allar þeirri starfsemi sem fram fór
í eynni á meðan gert var þaðan út. Engar
þeirra virtust mjög fornar en sökum gróðurs
og fuglabyggðar var ógemingur að greina
eldri leifar undir yfirborði. Flestar minjanna
voru á Hjallsholti, alls níu (sjá uppdrátt).
30 Guðný Zoéga. Seley við Reyðarjjörð. Fornleifaskráning, 22 bls.
100