Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Blaðsíða 115
Ingimar Sveinsson
Víðidalsferð í ágúst 1981
riðjudaginn 25. ágúst 1981, lögðum við
af stað frá Djúpavogi klukkan korter
yfir íjögur eftir hádegi, á tveimur
jeppum suður til Alftaijarðar og var ferðinni
heitið til Víðidals inn af Lóni. Bílamir vom:
Rússajeppi Ara Guðjónssonar og Blaserjeppi
Hjartar Guðmundssonar.
Fararstjóri var Ari Guðjónsson en hann
er kunnugur á þessum slóðum. Aðrir þátt-
takendur vom: Hjörtur Guðmundsson, Guð-
mundur Hjartarsson, Þórður Snjólfsson,
Valgeir Vilhjálmsson og Ingimar Sveinsson,
allir frá Djúpavogi.
Ekið var sem leið lá suður í Álftaijörð og
beygt til hægri af þjóðveginum við bæinn
Múla og ekið inn Múladal sunnan Geithellaár.
Vegurinn var ekki sérlega greiðfær og vomm
við um tvo og hálfan tíma inn á gamla eyði-
býlið Hvannavelli. Mældist þangað um 20
km leið. Sunnan Geithellaár nefnist dalurinn
Múladalur, en Geithelladalur austan ár.
Náttúmfegurð er mikil í dalnum og em
þar margir staðir sem vert er að staldra við
og skoða í næði, s.s. Myrkvadalur, sem er
lítill botn eða slakki austan ár, mjög vaxinn
skógi. Skógarkjarr er nokkurt beggja megin
ár og dalurinn vel gróinn.
Þegar komið var á Hvannavelli vom bíl-
amir yfirgefnir, en farangurinn lagður á bakið
og haldið lengra inn eftir dalnum fótgangandi.
Var klukkan þá um 19:30.
Gengum við inn dalinn í um einn og hálfan
tíma og vom tjöldin reist þar sem kallað er
inn undir Fossi. Þess skal getið að við litum
í tóftarbrot á Hvannavöllum, en þar var áður
búið. Þar em rústir af bæ fólksins, sem síðar
flutti í Víðidal og síðan að Bragðavöllum
í Hamarsfirði. Er túnið all víðáttumikið og
ber með sér, að þar hefur verið talsverður
heyfengur.
Fossinn innst í Múladal er fallegur. Fellur
í þröngum stokki og stuðlabergshamrar form-
fagrir til beggja hliða. Við hituðum okkur
kaffi og fengum okkur bita, lögðumst síðan
til svefns. Ekki sváfú allir mjög lengi þessa
nótt. Áin og fossinn höfðu nokkuð hátt. Dynur
árinnar var stöðugur og bjartur, þar sem hún
flýtti sér út dalinn. Undir heyrðist hinn dimmi
dynur fossins, ekki eins samfelldur.
Þegar birti af degi skriðu menn úr pokunum
og þurfti engan að vekja. Var hitað kafíl að
nýju og fengu menn sér hressingu. Dvaldist
okkur nokkuð við myndatökur og að skoða
113