Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Side 144
Múlaþing
íbúafjöldi á Austurlandi 1990-2011
Núverandi
sveitarfélöa
oPo!voá'o?>oí'abo!°dáo?>oP>cPlrC'rá'cv>o?'cvlrl°c4r$>cvl'di'N.N
Ár
Mynd 3. Ibúafiöldi á Austurlandi 1990-2011 (samkv. tölum frá Hagstofu Islands).
flestir þeir, sem fluttu á svæðið samkvæmt
ofannefndri spá, séu nú fluttir þaðan aftur.
Hvort sem sannara er, þá virðast íbúaflutn-
ingar frá Austurlandi hafa aukist á ný, þrátt
fyrir hinar stórtæku framkvæmdir á svæðinu,
sem áttu að leggja grundvöll að velmegun og
vexti. Með hag Austurlands og alls íslands
í huga, er erfitt að líta á þetta sem jákvæða
þróun.
Samkvæmt Hagstofu Islands voru íbúar
íslands árið 2009 samanlagt 319.368 talsins,
en fækkaði um hálft prósent til ársins 2010.
Hér er miðað við heildaríbúatjölda lands-
ins, og rétt að minnast þess, að íbúafjöldi
Austurlands er einungis rúm 3% af þeim
fjölda. Á Austurlandi höfðu 10.373 manns
búsetu árið 2010, og hafði þá fækkað um
3,4% frá árinu áður. Af íbúum 2010 voru
792 ungmenni á aldrinum 16-20 ára, sem
höfðu lokið skyldunámi, 402 stúlkur og 390
piltar, langflest þeirra á Fljótsdalshéraði og
i Fjarðabyggð, eða 283 og 339. Skólaárið
2009-2010 stunduðu 87% ungmennanna nám,
einkum í tveim skólum, Menntaskólanum á
Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands
á Neskaupstað, samtals 690 ungmenni, 418
stúlkur og 272 piltar.
Árið 2009 varhlutfall 16-20 ára ungmenna
7,5% af íbúatjölda á öllu íslandi, og ögn hærra
á Austurlandi, eða 7,7%. Árið 2010 hafði
ungmennum á Austurlandi fækkað um meir
en 3% frá árinu áður, og Austurland orðið
að sama skapi fátækara. Þróunin var svipuð
á árinu 2011.
Þessari rannsókn er ætlað að lýsa á skipu-
legan hátt viðhorfum ungmenna á Austur-
landi, áliti þeirra á eigin högum, líðan nú og
skoðunum á framtíðarhorfum sínum. Hér
142