Andvari - 01.01.2013, Page 96
94
PÉTUR PÉTURSSON
ANDVARI
Afdrifarík vinslit
Matthías Jochumsson komst í náin kynni við únitara þegar hann dvaldist á
Englandi veturinn 1873-74. Þá var hann að jafna sig eftir konumissi og ýmsar
hremmingar heima á íslandi. Það var fyrir sambönd Eiríks að hann var boð-
inn velkominn á heimili eins áhrifamesta únitarans á Englandi, Roberts Spear,
þar sem hann fékk allslaus að búa ókeypis við gott atlæti í fimm vikur.44
Matthías tók miklu ástfóstri við únitarana vini sína, sem sáu í honum efni
í trúboða og fengu honum fúlgu fjár svo að hann gæti keypt Þjóðólf helsta
landsmálablað íslendinga á þessum tíma og gert það að málgagni frjálslyndra
trúarskoðana á íslandi. Eiríkur Magnússon og Jón Sigurðsson aðstoðuðu
Matthías við kaupin og hugsaði hann sér þá gott til glóðarinnar um samstarf
við þessa tvo menn og bað þá um greinar í blaðið. Þá lá fyrir að konung-
ur mundi á grundvelli stöðulagana frá 1871 færa Islendingum stjórnarskrá á
þjóðhátíðinni sumarið 1874. Jón hafði ýmislegt við stöðulögin að athuga og
í framhaldi af þeim við stjórnarskrána og bjóst hann og stuðningsmenn hans
nú við að fá inni í Þjóðólfi fyrir greinar um stefnu sína. Matthías falaðist sér-
staklega eftir greinum frá Eiríki um trúmál, enda mátti það telja í samræmi
við yfirlýst kristilegt frjálslyndi blaðsins að Eiríkur mundi birta þar greinar
um trúmál og kirkjumál.
í janúar árið 1874 hóf Jón Hjaltalín landlæknir að gefa út blaðið Sæmundur
fróði. Birti hann þar margar ítarlegar greinar um heilbrigðismál og læknis-
fræði en einnig almenn efni. í stefnugrein blaðsins fjallaði hann um menn-
ingar- og trúmál í Evrópu og minntist þar á ógnir Parísarkommúnunnar, sem
stóð fyrir byltingu í París fjórum árum áður og hættuna sem stafaði af sósíal-
istum og gagnrýnendum kristinnar kirkju. Hann fjallar um þróunarkenningu
Darwins sem hann greinilega taldi fjarstæðu til þess fallna að grafa undan
siðferðisgrundvelli borgaralegs þjóðfélags. Flokkaði hann hinar ýmsu stefnur
og strauma í menningar- og stjórnmálum í tvennt. Hann setti saman í flokk
þróunarkenningu Darwins, pósitívisma (framstefnu) August Comte, efnis-
hyggju og sósíalisma. Að mati landlæknis ógnuðu þessar stefnur reglunni í
þjóðfélögum og grófu undan guðsótta og góðum siðum. Hughyggjumenn og
hin eiginlegu vísindi heyrðu aftur á móti til þeirri fylkingu sem stóð vörð um
velferð þjóðfélaganna og þegna þeirra.45
Þótti nú Eiríki Magnússyni nóg um og birti langa grein undir dulnefninu
Styrmir í blaðinu Norðanfara sem Björn Jónsson gaf út á Akureyri. Aður hafði
hann sent Matthíasi greinina til birtingar í Þjóðólfi og honum líkað hún vel og
hann ætlaði að birta hana, en vildi að það yrði gert undir nafni höfundar, sem
Eiríkur vildi ekki. Eftir að hafa sýnt Jóni Hjaltalín greinina aftók Matthías að
birta hana. Líklega hefur Eiríkur einnig boðið Matthíasi greinar um stjórn-
mál sem beindust gegn Jóni Hjaltalín og öðrum sem honum fannst standa í