Andvari - 01.01.2013, Page 98
96
PÉTUR PÉTURSSON
ANDVARI
Það mun vera rjett trú, að trúa á guðlega forsjón. Er ekki svo? Það mun vera rjett trú,
að trúa því að allir hlutir sjeu í hendi forsjónarinnar og að hún leiði alla hluti fram að
takmarki hins góða, fram að marki fullkomnunarinnar. Er ekki svo? Og þó getur þessi
höfundur, er segist vera rjetttrúaður, og eiga þar sammerkt við hina mestu gáfumenn
heimsins, fengið af sér að geta þess til að hin núverandi heimsmenntun kunni að geta
fallið í grunn fyrir socialismus!49
Áhersla Eiríks á guðlega forsjón, fullkomnun og takmark hins góða er áhuga-
verð og algerlega í samræmi við guðfræði hans að öðru leyti þótt hún sé hér
sett fram í pólemísku samhengi. Hann taldi það firru að vísindahyggja og
kristin trú væru andstæður og tók það sérstaklega fram að þróunarkenning
Darwins væri líkleg skýring á uppruna tegunda lífríkisins. Honum fannst
þessi kenning alls ekki gera lítið úr sköpunarverki Guðs og það væri fjar-
stæða að spyrða hana saman við sósíalisma á þann hátt sem Jón Hjaltalín
gerði. Þar sem hér er um að ræða einar fyrstu umræður um þróunarkenningu
Darwins og þýðingu hennar fyrir trúna er athyglisvert að skoða sjónarmið
Eiríks nánar.50
Mitt inn í þetta hringsól er Darwin þeytt, manni sem að vorri vitund hefur ekki
skrifað eina einustu línu í heimspeki; en hann hefur ritað um kynsamband mannsins
og apans af frábærum lærdómi og komist að þeirri niðurstöðu að allar líkur stæðu
til þess að frummynd mannsins væri apinn. En að kenna honum, og þeim er hans
skoðun fylgja, „apakatta-niðjunum“, um það að hafa gjörzt foringjar socialista eður
sameignarmanna, það hefir víst engum dottið í hug enn nema Dr. H. En sje [Darwin-
isminn] „afvegaleiðandi trúarefnum", þykir oss líklegt að þeir, er leiðast af trú sinni
fyrir [hann] geti varla verið mjög fastir í trúnni. En einskis trúaðs manns trú verður að
trúleysi þó vísindaleg rannsókn leiði hann í einhverju efni að niðurstöðu er ekki nær
heim við einhvern kapítula í gamla testamentinu. Hin vísindalega rannsókn stendur ef
hún er sönn; fellur ella.51
Þegar greinarhöfundur minntist á apann sem frummynd mannins var rit-
stjóranum, prestssyninum Birni Jónssyni, nóg boðið og hann bætti inn at-
hugasemd neðanmáls: „Otrúlegt þykir mjer það að mannkynið sje af öpum
komið. Ritstjórinn.“52 Eiríkur hafnaði því að efnishyggjumenn (raunhyggju-
menn) væru guðleysingjar og benti á að raunvísindin væru knúin áfram af
sannleiksþrá sem væri í anda kristindómsins og að þau væru ein leið til að
skilja og lofa hið dásamlega sköpunarverk Guðs. Engin ástæða væri fyrir
guðstrúarfólk að óttast framgang vísinda því að rangar vísindakenningar féllu
um sjálfar sig. En þó ritar hann:
Heimspeki materialista gjörir það erfitt gáfuðum og vakandi mönnum að lesa postillur
sumra guðfræðinga með andakt. En það sannar ekki að hjarta materialistans sje fjær
Guði,en hugsunarreksturpostilluhöfundarins.Efnisspekin stefniríeina átt; sannleikans;
verði Guð ekki fundinn á þeirri leið, hvar skyldi hans þá leita? Er það synd og svívirðing