Jökull


Jökull - 01.01.2021, Page 96

Jökull - 01.01.2021, Page 96
Eiríkur Þ. Einarsson fjalls. Hafursey sést og á myndinni. – Hin myndin er jökulbrot í hrannarendanum, norðan við Selfjall. Jak- inn er sívalur, allur með rákum eftir hlaupið; standa fylgdarmenn mínir uppi á jakabroti rétt hjá. Ægilegt þótti mér um að litast, um þessar slóð- ir, enda gat maður búist við að enn hlypi fram þá og þegar, því býsn og ólæti voru svo mikil í jöklinum, að undrum sætti; var mér það gagn, að eg hafði góða fylgdarmenn, þá Magnús Jónsson úr Vík og Harald sterka Einarsson frá Kerlingardal, því margar voru torfærurnar á leið okkar um sandana. Myndir tók eg öðru hvoru á þessari leið; ætlaði eg upphaflega að reyna að komast alla leið að upptökum eldsins, en það var með öllu ófært, enda skorti okkur umbúnað til útilegu á jöklinum; var og öðru hvoru snjógangur og dimmviðri á jöklinum og dagur skammur orðinn. Að endingu vildi eg mælast til þess, að hr. Þorl. Sverrisson setji nú ekki lengur ljós sitt undir mæliker, en láti næst ljós skína á sínar eigin myndir, svo að mönnum gefist færi á að sjá og skoða allar undramyndirnar hans. Kjartan Guðmundsson.“ (Mbl. 19. maí 1919). Ekki veit ég til þess að Þorlákur hafi nokkru sinni birt sínar myndir af Kötlugosinu. Þær koma því flestar fyrir almennings sjónir í fyrsta sinn nú. Sagt er að sr. Óskar J. Þorláksson hafi einhverju sinni hringt í dr. Sigurð Þórarinsson og sagt honum frá þessum myndum. Sigurður hafi þá hent öllu frá sér sem hann vann að og hlaupið út í Aragötu þar sem sr. Óskar bjó til að skoða myndirnar. Árið 1975 gáfu börn Þorláks Jarðfræðideild Há- skóla Íslands glerplötur með myndum af Kötlugosinu í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá fæðingu Þorláks. Fram kemur í gögnum deildarinnar að tvær eftirtökur hafi verið gerðar af þeim plötum og annað settið sé hjá Jarðfræðideildinni en hitt hafi farið til séra Óskars J. Þorlákssonar, sonar Þorláks. Um tíma fundust hvorki myndirnar né glerplöturnar. Skjalasafn sr. Óskars er komið á safn og hefur ekki unnist tími né tækifæri til að skoða það til að athuga hvort þessar myndir séu þar og sama er að segja um safn Dr. Sigurðar Þórarinsson- ar. Glerplöturnar fundust loks í gömlum peningaskáp sem staðið hafði í einni skrifstofunni í Raunvísinda- stofnu í janúar 2013. Í Lesbók Morgunblaðsins 7. janúar 1989 er löng grein eftir sr. Óskar J. Þorláksson um Kötlugosið 1918 og eru með greininni birtar fjórar myndir sem Þor- lákur tók af gosinu. Þar birtust myndir Þorláks af Kötlugosinu í fyrsta sinn. Niðurlag greinar sr. Ósk- ars er eftirfarandi: „Myndir þær, sem fylgja þessari grein, voru tekn- ar af Þorláki Sverrissyni, kaupmanni, sem þá fékkst nokkuð við ljósmyndasmíði og voru þær teknar á fyrstu dögum gossins og hafa þær ekki birtst áður. Alls tók hann um 20 myndir af gosinu og eru myndaplöt- urnar nú í eigu jarðfræðideildar Háskóla Íslands. “ Örfáar myndir á pappír fann ég í fórum foreldra minna af Kötlugosinu, en ég hef hins vegar ekki hug- mynd um dagsetningu hverrar fyrir sig. Myndirn- ar hefur Þorlákur gert eftir glerplötunum sem nú hafa verið afhentar Ljósmyndasafni Þjóðminjasafns Íslands til varðveislu. Þetta þýðir að nú er unnt að skera úr um hvaða Kötlumyndir Þorlákur tók og hverj- ar voru teknar af Kjartani Guðmundssyni ljósmynd- ara, en einhver ruglingur hefur verið þar að lútandi. HEIMILDIR Einar H. Eiríksson 1978. Söluturninn í Vestmannaeyjum. 50 ára starfsafmæli. Sjómannadagsblað Vestmanna- eyja 1978, 12-21. Morgunblaðið 21. janúar, 18. mars, 19.ṁaí, 1919 – skrif Kjartans Guðmundssonar og Þorláks Sverrissonar um Kötlumyndir Óskar J. Þorláksson 1989: Myrkur um miðjan dag. End- urminningar frá Kötlugosinu 1918. Lesbók Morgun- blaðsins 64. árg., 7. janúar 1989, 4–5. 94 JÖKULL No. 71, 2021
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.