Jökull - 01.01.2021, Qupperneq 96
Eiríkur Þ. Einarsson
fjalls. Hafursey sést og á myndinni. – Hin myndin er
jökulbrot í hrannarendanum, norðan við Selfjall. Jak-
inn er sívalur, allur með rákum eftir hlaupið; standa
fylgdarmenn mínir uppi á jakabroti rétt hjá.
Ægilegt þótti mér um að litast, um þessar slóð-
ir, enda gat maður búist við að enn hlypi fram þá og
þegar, því býsn og ólæti voru svo mikil í jöklinum, að
undrum sætti; var mér það gagn, að eg hafði góða
fylgdarmenn, þá Magnús Jónsson úr Vík og Harald
sterka Einarsson frá Kerlingardal, því margar voru
torfærurnar á leið okkar um sandana. Myndir tók eg
öðru hvoru á þessari leið; ætlaði eg upphaflega að
reyna að komast alla leið að upptökum eldsins, en
það var með öllu ófært, enda skorti okkur umbúnað
til útilegu á jöklinum; var og öðru hvoru snjógangur
og dimmviðri á jöklinum og dagur skammur orðinn.
Að endingu vildi eg mælast til þess, að hr. Þorl.
Sverrisson setji nú ekki lengur ljós sitt undir mæliker,
en láti næst ljós skína á sínar eigin myndir, svo
að mönnum gefist færi á að sjá og skoða allar
undramyndirnar hans. Kjartan Guðmundsson.“ (Mbl.
19. maí 1919).
Ekki veit ég til þess að Þorlákur hafi nokkru sinni
birt sínar myndir af Kötlugosinu. Þær koma því flestar
fyrir almennings sjónir í fyrsta sinn nú.
Sagt er að sr. Óskar J. Þorláksson hafi einhverju
sinni hringt í dr. Sigurð Þórarinsson og sagt honum
frá þessum myndum. Sigurður hafi þá hent öllu frá
sér sem hann vann að og hlaupið út í Aragötu þar sem
sr. Óskar bjó til að skoða myndirnar.
Árið 1975 gáfu börn Þorláks Jarðfræðideild Há-
skóla Íslands glerplötur með myndum af Kötlugosinu
í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá fæðingu Þorláks.
Fram kemur í gögnum deildarinnar að tvær eftirtökur
hafi verið gerðar af þeim plötum og annað settið sé hjá
Jarðfræðideildinni en hitt hafi farið til séra Óskars J.
Þorlákssonar, sonar Þorláks. Um tíma fundust hvorki
myndirnar né glerplöturnar. Skjalasafn sr. Óskars er
komið á safn og hefur ekki unnist tími né tækifæri til
að skoða það til að athuga hvort þessar myndir séu þar
og sama er að segja um safn Dr. Sigurðar Þórarinsson-
ar. Glerplöturnar fundust loks í gömlum peningaskáp
sem staðið hafði í einni skrifstofunni í Raunvísinda-
stofnu í janúar 2013.
Í Lesbók Morgunblaðsins 7. janúar 1989 er löng
grein eftir sr. Óskar J. Þorláksson um Kötlugosið 1918
og eru með greininni birtar fjórar myndir sem Þor-
lákur tók af gosinu. Þar birtust myndir Þorláks af
Kötlugosinu í fyrsta sinn. Niðurlag greinar sr. Ósk-
ars er eftirfarandi:
„Myndir þær, sem fylgja þessari grein, voru tekn-
ar af Þorláki Sverrissyni, kaupmanni, sem þá fékkst
nokkuð við ljósmyndasmíði og voru þær teknar á
fyrstu dögum gossins og hafa þær ekki birtst áður. Alls
tók hann um 20 myndir af gosinu og eru myndaplöt-
urnar nú í eigu jarðfræðideildar Háskóla Íslands. “
Örfáar myndir á pappír fann ég í fórum foreldra
minna af Kötlugosinu, en ég hef hins vegar ekki hug-
mynd um dagsetningu hverrar fyrir sig. Myndirn-
ar hefur Þorlákur gert eftir glerplötunum sem nú
hafa verið afhentar Ljósmyndasafni Þjóðminjasafns
Íslands til varðveislu. Þetta þýðir að nú er unnt að
skera úr um hvaða Kötlumyndir Þorlákur tók og hverj-
ar voru teknar af Kjartani Guðmundssyni ljósmynd-
ara, en einhver ruglingur hefur verið þar að lútandi.
HEIMILDIR
Einar H. Eiríksson 1978. Söluturninn í Vestmannaeyjum.
50 ára starfsafmæli. Sjómannadagsblað Vestmanna-
eyja 1978, 12-21.
Morgunblaðið 21. janúar, 18. mars, 19.ṁaí, 1919 – skrif
Kjartans Guðmundssonar og Þorláks Sverrissonar um
Kötlumyndir
Óskar J. Þorláksson 1989: Myrkur um miðjan dag. End-
urminningar frá Kötlugosinu 1918. Lesbók Morgun-
blaðsins 64. árg., 7. janúar 1989, 4–5.
94 JÖKULL No. 71, 2021