Jökull - 01.01.2021, Page 97
Society report
Ljósmyndir Þorláks Sverrissonar í Vík:
Kötlugosið 1918 í nýju ljósi
Guðrún Larsen og Þórdís Högnadóttir
Jarðvísindastofnun, Háskóla Íslands, Öskju, Sturlugötu 7, 102 Reykjavík
glare@hi.is; https://doi.org/10.33799/jokull2021.71.095
Ágrip — Þorlákur Sverrisson kaupmaður í Vík í Mýrdal tók ljósmyndir af Kötlugosinu 1918 „frá byrjun til
enda“ svo vitnað sé í hans eigin orð. Raunvísindastofnun fékk 18 glerplötur að gjöf frá erfingjum hans og eft-
irmyndir af 17 þeirra birtast hér ásamt skýringum og tilraun til tímasetninga. Ef tímaröðin, sem hér er kynnt,
er nærri lagi eru myndirnar teknar frá 12. október til 2. nóvember 1918. Samkvæmt henni var fyrsta myndin
tekin í Víkurþorpi 12. október, á fyrsta gosdegi og sýnir gosmökk vofa yfir húsunum. Önnur mynd frá sama
degi var tekin norðan Víkur og sýnir háan gráleitan mökk yfir Höttu. Þessar tvær gætu verið fyrstu myndir í
heiminum sem teknar voru af sprengigosi í jökli. Eftir fyrstu þrjá dagana sljákkaði í gosinu. Fjórar myndir sem
sýna lægri gosmökk, meðal annars tvo aðgreinda gosmekki upp úr jöklinum, voru teknar á tímabilinu 15. til 20.
október. Mekkirnir eru hvítir að sjá á myndunum og virðast að mestu vatnsgufa. Mynd frá 22. október sýnir
dökkgráan öskumökk yfir fjöllunum norðan Víkur, rétt áður en hann fór að hrynja yfir fjallabrúnirnar og aska
fór að falla í þorpinu. Mynd frá 24. október sýnir dökkan mökk yfir Höttu kolsvartri af ösku og einnig virðast
upptök makkarins nú austar en áður. Öskufall hófst í Vík síðdegis þann dag og stóð í 13 klst. Fjórar myndir
voru teknar 2. nóvember, síðasta daginn sem verulegur gosmökkur sást. Auk mynda af gosmekki tók Þorlákur
myndir af hlaupfarvegum og ísgljúfri sem varð til þegar jökulhlaup braust fram undan/úr jaðri Kötlujökuls og
braut a.m.k. 1300 m langt og allt að 300 m breitt skarð í hann. Myndir Þorláks eru þær einu sem þekktar eru af
þessu gljúfri. Vísindalegt gildi myndanna er töluvert og í þeim eru meiri upplýsingar en dæmin sem tekin eru
hér. Þær sýna breytileikann í sprengivirkninni og staðfesta færslu gosstöðvanna meðan á gosinu stóð. Hægt er
að reikna hæð gosmakkar og miða út upptök hans. Þær sýna hlaupfarvegi á Mýrdalssandi og hægt er að meta
flóðmörk meginhlaupsins á ofanverðum sandinum. Sumar myndanna hafa látið á sjá en með nútímatækni er
hægt að laga þær og skerpa og nýta til fulls.
INNGANGUR
Í eigu Jarðvísindastofnunar eru 18 myndir sem Þor-
lákur Sverrisson, kaupmaður í Vík í Mýrdal, tók á
meðan á Kötlugosinu 1918 stóð. Erfingjar Þorláks
færðu Raunvísindastofnun Háskólans glerplötur með
myndum hans að gjöf árið 1975. Eftirmyndir voru
gerðar af hverri þeirra en glerplötunum var síðan
komið fyrir í skjalaskáp til geymslu. Glerplöturnar
komu aftur í ljós þegar farið var yfir gömul gögn árið
2013. Ákveðið var að fela Þjóðminjasafni að geyma
glerplöturnar og gera eftirmyndir á stafrænu formi.
Myndir Þorláks birtast hér ásamt skýringum en númer
myndanna, ÞS-2-001 til ÞS-2-018, vísa til skráningar
Þjóðminjasafns.
Myndum Þorláks má skipta í þrennt eftir efni
þeirra. Af þeim eru 12 myndir af gosmekki, þrjár
af hlaupfarvegum og jakahrönn og tvær af ísgljúfri í
sporði Kötlujökuls þar sem meginhlaupið braust fram.
Ein mynd er af þorpinu í Vík, líklega tekin á árabilinu
1922–1925.
JÖKULL No. 71, 2021 95