Jökull


Jökull - 01.01.2021, Page 117

Jökull - 01.01.2021, Page 117
Society report Jöklabreytingar 1930–1970, 1970–1995, 1995–2019 og 2019–2020 Hrafnhildur Hannesdóttir Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9, 108 Reykjavík hh@vedur.is; https://doi.org/10.33799/jokull2021.71.115 YFIRLIT — Sjálfboðaliðar félagsins fóru til mælinga síðastliðið haust en þó nokkrir komust ekki til að mæla vegna tilmæla sóttvarnaryfirvalda um að ferðast ekki á milli landshluta á haustmánuðum. Alls bárust upp- lýsingar frá tæplega 40 sporðamælistöðum. Langflestir sporðar hopa og er hörfunin mest á Síðujökli og austanverðum Breiðamerkurjökli eða í kringum 200 m. Hins vegar mælist framgangur á örfáum sporðum í sunnnanverðum Vatnajökli, sem nú er auðvelt að bera saman við hraðasviðsmyndir úr gervitunglagögnum. ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR Langflestir mældir sporðar hörfa eða um 80% þeirra, víða er hörfunin nokkrir tugir m, en um og yfir 100 m hop mælist á 10 stöðum. Svínafellsjökull, Falljök- ull, Hrútárjökull og hluti Fjallsjökuls gengu greinilega lítillega fram, sem og Brókarjökull og Morsárjökull. Að þessu sinni var gerlegt að ganga meðfram jaðri Svínafellsjökuls þar sem jörð var frosin og vatnsstað- an í lóninu lág. Jökuljaðarinn er hærri núna en hann hefur verið um nokkurra ára skeið. Svipaða sögu er að segja af Falljökli og ljóst að þeir hafa báðir gengið lítillega fram. Frá síðustu mælingu Falljökuls er nokk- ur munur á ásýnd jökulsporðsins þar sem hann virðist nú allur hærri og brattari. Samkvæmt heimamönnum gekk jökullinn fram, mögulega um nokkra tugi metra, síðastliðinn vetur (2019–2020) og var kominn nálægt færanlegri brú sem jöklagöngufólk notar til þess að komast yfir ána sem rennur úr jöklinum. Austurríska fyrirtækið ENVEO hefur unnið skriðhraðakort fyrir íslenska jökla út frá gervitunglamyndum í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskól- ans. Út frá þeim kortum má sjá að aukning hefur orðið á hraða ísskriðsins á nokkrum svæðum á skriðjöklum Öræfajökuls á síðustu árum. Hægt er að skoða hraða- kortin mánuð fyrir mánuð á tímabilinu 2014 til 2020 á vefslóðinni cryoportal.enveo.at Mælingar á sporðum sem ganga út í lón, svo sem austanverður Skeiðarárjökull, Morsárjökull og Heinabergsjökull, eru erfiðar, og ekki víst að alltaf fáist marktæk mæling þegar jökullinn liggur flatur út í lónið og brotnar af honum. Nemendur Fram- haldsskóla Austur-Skaftafellssýslu mæla Heinaberg- sjökul með fjarlægðarkíki í fylgd kennara og Snæv- arrs Guðmundssonar og bera niðurstöðurnar saman við stöðu jökulsins á gervitunglamyndum. Snævarr Guðmundsson á Náttúrustofu Suðausturlands sinnir einnig mælingum á Kvíárjökli, Hrútárjökli, Fjalls- jökli og Breiðamerkurjökli og er jaðarinn hnitaður af Landsat 8 gervitunglamyndum einvörðungu. Nýr umsjónarmaður er tekinn við mælingum á Reykjarfjarðarjökli. Ragnar Heiðar Þrastarson tekur við keflinu úr hendi föður síns Þrastar Jóhannssonar, sem sinnt hefur mælingum í 25 ár. Mæling jökulsins helst því áfram innan þeirra fjölskyldu sem upphaflega tók að sér verkið. Guðfinnur Jakobsson, föðurbróðir Þrastar, mældi jökulinn í hálfa öld á undan Þresti. Frá sumarhúsum í Reykjarfirði er nú farið að bera talsvert á jökulskerjum ofan við Þaralátursfjörð. Þau ganga upp frá jaðri jökulsins á milli Ljótarjökuls og Þaralát- ursjökuls og standa bændur í Reykjarfirði nú frammi fyrir því verkefni að nefna þetta nýja land. JÖKULL No. 71, 2021 115
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.