Jökull - 01.01.2021, Síða 120
Hrafnhildur Hannesdóttir
ár og kvíslar þveraðar, og var í fyrsta sinn gengið und-
ir Hengibjörgum á leiðinni tilbaka.
Þórisjökull – Guðbjörn Margeirsson og fjölskylda
náðu mælingu á tveimur sporðum, en þar voru ákvarð-
aðir viðmiðunarpunktar haustið 2018, og reyndust
jöklarnir hafa hopað um tæpa 20 og 40 m.
Hofsjökull
Blágnípujökull – Aðstæður til mælinga voru góðar,
en hægt var að komast að jökuljaðrinum þar sem ána
hafði lagt. Jökullinn heldur áfram að hopa.
Nauthagajökull og Múlajökull – Að þessu sinni tók
þó nokkur hópur þátt í mælingum með Leifi Jónssyni.
Sporðarnir mældir með GPS-tæki og fjarlægðarmæli
þar sem lón hindra för mælingamanna.
Sátujökull – Ekki náðist mæling þetta haustið.
Mýrdalsjökull
Sólheimajökull – Sporðurinn áætlaður með fjarlægð-
arkíki og er hörfunin rúmlega 50 m á þeirri mælilínu
sem stuðst er við. Ljóst er að jökullinn næst Hvítmögu
er mjög sléttur og þunnur og þar hefur brotnað framan
af sporðinum.
Sléttjökull – Ekki náðist mæling þetta haustið.
Suðurlandsjöklar
Torfajökull – Ágúst Hálfdánsson og félagar mældu
suðursporð Torfajökuls í fyrsta nýsnævi haustsins.
Tindfjallajökull – Ekki var unnt að mæla Tindfjalla-
jökul þetta haustið.
Vatnajökull
Síðujökull – Vitjað var um sporð Síðujökuls snemma
vors 2021, en ekki tókst að fara til mælinga um haust-
ið. Jökullinn hefur hörfað mikið milli ára, ríflega
200 m.
Skeiðarárjökull austur – Dauðís, kelfandi sporður og
allstórt lón, svokallað Háöldulón gerir mælingafólki
erfitt um vik að staðsetja virkan jökuljaðar. Þó virðist
þessi armur jökulsins hörfa um nokkra tugi metra milli
ára. Skeiðarárjökull lækkar stöðugt á milli Skafta-
fellsfjalla og Grænafjalls/Súlutinda.
Morsárjökull – Örlítill framgangur mælist á sporðin-
um. Jökullinn heldur áfram að lækka að vestanverðu
en er töluvert hærri þar sem skriða féll á jökulinn árið
2007.
Hópurinn sem slóst í för með mælingamönnum við
norðanverðan Torfajökul. Vel gekk að finna sporð-
inn þrátt fyrir talsvert nýsnævi. – The group join-
ing the measurements of the terminus of northern
Torfajökull, which was successful despite considera-
ble amount of new snow. Ljósm./Photo: Hálfdán
Ágústsson, 1. október, 2020.
Skaftafellsjökull – Ekki varð komist til mælinga þetta
haustið.
Öræfajökull
Svínafellsjökull – Jökullinn hefur greinilega gengið
fram milli ára.
Falljökull – Samkvæmt skýrslu Svövu Bjarkar er jök-
ullinn allur hærri í jaðarinn og ljóst að hann hefur
gengið aðeins fram.
Kvíárjökull – Hörfun mælist á öllum þremur mælilín-
um við Kvíárjökul, sem Snævarr Guðmundsson áætl-
ar út frá Landsat8 myndum. Hafa skal í huga að óviss-
an er ±15 m með því að notast við myndirnar. Búið er
að uppfæra og yfirfara mælingar síðustu tveggja ára-
tuga, sjá töflu.
118 JÖKULL No. 71, 2021