Jökull


Jökull - 01.01.2021, Side 131

Jökull - 01.01.2021, Side 131
Jöklarannsóknir á Íslandi á fimmta áratugnum mælinga þarna uppi á hájöklinum. Þangað höfðu hinir dönsku landmælingamenn ekki farið á sínum tíma. Þetta var „einnotakerfi“ því að ekki er hægt að merkja mælingastöðvar með varanlegum hætti á jökulhjarni, sem er á hreyfingu. Ekki reyndist auðvelt að finna þrí- hyrningamælistöð utan Mýrdalsjökuls, sem unnt væri að tengja nýja þríhyrningakerfið við. Þessu þurfti að koma á hreint í annarri ferð. Steinþóri tókst fljótlega að safna nægum upplýs- ingum með mælingum sínum til þess að gera allgott kort af Mýrdalsjökli með 100 metra hæðarlínum – að undanskildum allra nyrsta hluta jökulsins. Þá var hægt að átta sig á formi jökulsins í fyrsta sinn, því að kort dönsku landmælingastofnunarinnar fengust ekki hingað meðan heimsstyrjöldin stóð. Á þessum tjaldstað vorum við 4 nætur. Þar gróf- um við 5,4 metra djúpa snjógryfju til þess að kanna snjólagið frá síðasta vetri. Svo tókum við okkur upp og héldum vestur á bóginn með sleða og farangur í togi og stefndum á Fimmvörðuháls. Á þeirri leið sáum við til tindanna í norðvesturhorni jökulsins, þar sem Entujökull skríður úr Mýrdalsjökli til norðvesturs niður á Emstrur. Við ákváðum að skilja sleðann eftir á hájöklinum og fara þangað lausgangandi á skíðun- um. Þaðan fengum við ágæta yfirsýn yfir norðurhluta Mýrdalsjökuls og hrikalegt náttúrufar á þeim slóðum, sem varla neinn hafði kannað áður. Þetta var áður en bílar fóru að fara Fjallabaksleið syðri. Leið okkar lá nú til sleðans á hájöklinum og héld- um við áleiðis vestur á bóginn. Við komum svo að íshelli okkar á ný og notuðum hann nú til þess að kanna hjarnlagið frá undangengnum vetri enn frekar með því að grafa gryfju niður úr hellisgólfinu. Um miðja nótt komum við loks á Fimmvörðuháls, í skála Fjallamanna og höfðum þá búið á jökli 9 daga sam- fellt og ferðast um á skíðum. Það var spennandi ævin- týri, sem heillaði okkur alla. Þegar við komum niður í Mýrdal, urðu heimamenn forviða, er þeir heyrðu um illviðrið sem við höfðum hreppt. Þar niðri hafði verið sólskin allan tímann. Okkur var ljóst, að við hefðum nú skoðað stærri hluta af Mýrdalsjökli og fengið betra yfirlit en áður hafði tekist. Að hvaða gagni mætti það koma? Á þeim tíma var allt óljóst um orsakatengsl milli jökla og eld- virkni og einkum Grímsvötn og Kötlu í því sambandi. Fullyrt var, að Kötluhlaup kæmi niður á Mýrdalssand í sama mund og gosmökkur Kötlu sæist stíga til lofts, eða jafnvel fyrr. Sumir álitu, að hlaupið setti gosið af stað með því að létta fargi af jarðskorpunni, gagnstætt því sem menn hugsuðu sér að færi fram í Grímsvötn- um. Þess skal minnst, að á þessum tíma var flekakenn- ing Wegeners ekki viðurkennd af neinum fræðimanni hér á landi og að enginn af okkar kynslóð hafði séð eldgos. Við ræddum um þessi atriði á heimleiðinni. Það virtist vera spor í rétta átt, ef takast mætti að fylgj- ast með yfirborðsbreytingum á þeim hluta af hájökl- inum sem „fæðir“ Kötlujökul, þ.e. skriðjökulinn sem skríður niður á Mýrdalssand. Á ferð okkar virtust mörk þess svæðis vera nokkuð ljós. En þetta var ekki auðvelt mælingaverkefni, þar sem nær engin jarðföst kennileiti eru, og punktar á jökulyfirborðinu hreyfast í þrívíðu rúmi. Þegar heim kom þróaðist sú hugmynd hjá Stein- þóri og Jóni Eyþórssyni að merkja allmarga punkta á jöklinum með lóðréttum stikum, nægilega háum til að standa upp úr hjarninu næsta sumar á eftir. Þá mætti bæta nýjum stöngum ofan á stikuendana, sem upp úr stæðu - og svo koll af kolli og mæla jafnframt hnit punktanna með þríhyrningamælingu á hverju sumri. Þá var gert ráð fyrir, að snjófyrningar hvers árs væru að meðaltali um 4 metrar, svo sem fyrr er getið. Þessari hugmynd var hrint í framkvæmd þá strax um haustið 1943. En fyrst þurftum við Steinþór og Jón að fara austur og athuga staðhætti upp með Höfða- brekkujökli. Á hengiflugi sunnan við hann, í um 1000 metra hæð, hlóðum við stóra mælingavörðu. Frá henni fengust sjónlínur bæði inn á hájökulinn og til þríhyrningapunkta í mælingakerfi landsins. Þetta er hrikalegur staður. Ferðin tók 3 daga. Í september 1943 var svo gerður leiðangur til þess að koma upp stikunum á hájöklinum. Steinþór undir- bjó ferðina og stjórnaði henni. Hún tók 17 daga. Jón Eyþórsson tók þátt í henni fyrstu átta dagana og tveir skíðafélagar okkar Steinþórs, Jóhannes Kolbeinsson og Jóhann Kristinsson. Þegar þeir snéru heim, komu þrír skíðakappar í staðinn, Friðrik Daníelsson, Gunnar Hjaltason og Ólafur Björn Guðmundsson, svo að alltaf voru þrír menn með Steinþóri. Ég komst ekki vegna skyldustarfa. JÖKULL No. 71, 2021 129
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.