Jökull


Jökull - 01.01.2021, Síða 143

Jökull - 01.01.2021, Síða 143
á tilvist lághraðalags í efri hluta möttulsins, sem nú gengur almennt undir heitinu linhvolf og er nauðsyn- legur hluti heimsmyndar flekakenningarinnar. Ofan á linhvolfinu hvílir nefnilega stinnhvolfið sem skiptist í fleka, stóra og smáa. Flekarnir geta færst til ofan á linhvolfinu. Flekahreyfingar Flekahreyfingar Þegar flekakenningin, eða fyrirrenn- ari hennar, kenningin um skrið hafsbotna út frá mið- hafshryggjum, kom fram snemma á sjöunda áratugn- um beindist athygli vísindamanna að Íslandi. Reykja- neshryggurinn og Kolbeinseyjarhryggurinn tengdust eldgosasvæðunum hér á landi. Ef jarðskorpan var að gliðna um hryggina, hlaut því gliðnun að eiga sér stað hér á landi líka. Eysteinn greip þessa hugmynd á lofti og kannaði allar hugsanlegar leiðir til að mæla þessar hreyfingar beint. Hann komst að því að hefð- bundnar landmælingar væru tæplega nógu nákvæm- ar til að gefa niðurstöður nema á mjög löngum tíma. Hann fann hins vegar leið framhjá þessum hindrun- um. Hæðar- og hallamælingar voru miklu nákvæmari en mælingar á láréttum færslum. Ef jarðskorpuflek- ar færast í sundur, hlýtur svæði umhverfis flekaskilin að síga, og sigið má mæla með þeim aðferðum sem tiltækar voru. Eysteinn kom sér því upp mælitækjum til hallamælinga og hóf umfangsmikið mælingaverk- efni hér á landi. Hann mældi hæðarsnið á mörgum stöðum yfir og umhverfis flekaskil á landinu, til dæm- is yfir Þingvallalægðina milli Almannagjár og Hrafna- gjár, á Vogaheiðinni á Reykjanesskaga og Reykjaheiði í Þingeyjarsýslu. Það var einmitt á þessum vettvangi sem fundum okkar Eysteins bar saman fyrst. Robert Decker, prófessor við Dartmouth College í Banda- ríkunum kom hingað til lands 1967 með nýtt tæki, geodimeter, sem gat mælt fjarægðir með meiri ná- kvæmni en áður þekktist. Hann vildi mæla snið yf- ir flekaskilin og ég, nýstúdentinn, var ráðinn til að sjá til þess að hann villtist ekki í óbyggðum Íslands. Beinast lá við að mæla snið yfir Þingvallalægðina og nota mælipunkta Eysteins. Mælingahóparnir hitt- ust á bakka Almannagjár, við mælipunkt Eysteins, og ræddu málin. Á þeim fundi bar margt á góma, meðal annars það að ekki væri nóg að mæla yfir Þingvelli og vestara gosbeltið til að ná utan um heildarhreyfingu flekanna. Það yrði líka að mæla yfir eystra gosbelt- ið, sem við síðan gerðum. Löngu síðar þróaðist sú hugmynd að líta á spilduna á milli gosbeltanna sem sérstakan fleka, Hreppaflekann. Aflögun eldfjalla Þegar Eysteinn hóf hæðar- og hallamælingar sínar var nýafstaðið gos í Öskju og gos stóðu yfir í Surtsey. Hann mældi því hæðarsnið á báðum þessum svæðum. Í Surtsey voru mælingarnar gerðar í þeim tilgangi að fylgjast með sigi og missigi eyjarinnar vegna þunga gosefnanna, en í Öskju var megintilgangurinn að rekja ferðir kviku neðanjarðar og þrýstingsbreytingar þeim tengdar. Eysteinn þekkti vel til svipaðra rannsókna á Hawaii þar sem sams konar mælingar höfðu ver- ið stundaðar um árabil. Mælilína Eysteins í Öskju hefur verið mæld mjög oft og hafa mælingarnar sýnt hvernig þrýstingur undir Öskju óx í nokkur ár eftir gosið 1961, en eftir 1980 tók þrýstingur að minnka og hefur gert það jafnt og þétt síðan. Eldgosið í Heklu 1970 varð til þess að Eysteinn setti upp mælistaði í nágrenni hennar til að fylgjast með hallabreytingum. Þar voru sett upp lítil net af mælipunktum til að skynja hallabreytingar, ýmist í lögun eins og O, T eða L. Eitt af þessum netum hef- ur sýnt reglubundnar hreyfingar sem gefa vísbendingu um þrýstingsbreytingar undir fjallinu. Árlegar mæl- ingar á þessum mælistað við Næfurholt sýna hvernig þrýstingur féll í gosunum 1991 og 2000 en hækkaði síðan jafnt og þétt milli gosanna og eftir gosið ár- ið 2000. Síðustu árin benda mælingarnar til þess að þrýstingur undir Heklu sé umtalsvert hærri en hann var fyrir gosin og fer hann hækkandi ár frá ári. Umbrot hófust við Kröflu skömmu eftir að Ey- steinn flutti til Íslands og var hann í hópi þeirra jarð- vísindamanna sem fyrstir áttuðu sig á því að óvenju- legir atburðir væru hafnir. Hann stóð þá fyrir því að hallamælipunktar voru settir upp víðs vegar um Kröflusvæðið. Fljótlega kom í ljós að stöðvarhús Kröfluvirkjunar, sem þá var í smíðum, væri ákjós- anlegur staður til hallamælinga. Eysteinn setti þar upp vatnshallamæla sem hann átti síðan í Heklugos- inu 1970. Sams konar tæki höfðu verið notuð lengi á Hawaii til að fylgjast með þrýstingsbreytingum í rótum eldfjallsins Kilauea. Þetta voru einföld tæki, í rauninni aðeins þrjár dósir með vatni í, tengdar sam- an með vatnsslöngum. Vatnsborðið í dósunum var JÖKULL No. 71, 2021 141
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.