Jökull


Jökull - 01.01.2021, Page 164

Jökull - 01.01.2021, Page 164
Pétur Sölvi Þorleifsson fæddist í Reykjavík 1933. Foreldrar hans voru Jónína Kristjánsdóttir og Þor- leifur Þorleifsson en fósturforeldrar Sölvina Baldvina Konráðsdóttir og Pétur Björgvin Björnsson. Foreldr- ar hans bjuggu við lítil efni og varð úr að Sölvína, ljósmóðirin sem tók á móti Pétri, tæki hann í fóstur. Pétur var fluttur til fósturforeldra sinna þriggja mán- aða gamall norður í Sléttuhlíð í Skagafirði. Þar ólst hann upp en fluttist til Reykjavíkur 1951. Pétur giftist Guðbjörgu Hjálmarsdóttir 1961. Hún lést aðeins 10 dögum á eftir Pétri, en hafði misst heilsuna rúmu ári fyrr. Sonur þeirra er Hjálmar Pétur söngvari. Pétur vann við reiðhjólaviðgerðir og rak lengst af ásamt öðrum Gamla Verkstæðið, en honum leið best á fjöllum og þar var hugurinn löngum. Á ferðum sínum notaði hann þann ferðamáta sem honum fannst henta í hvert skipti. Pétur ferðaðist m.a. um hálendið á reið- hjóli sem ungur maður. Alla tíð fór hann um fótgang- andi eða á skíðum. Í nokkurt árabil eftir 1965 átti Pét- ur snjóbílinn Nagg í félagi við aðra. Um 1970 hófst tímabil þegar hann var mikið á vélsleðum og stóð það í 20 ár. En tækin voru aukaatriði og Pétur sinnti jeppum eða vélsleðum að því marki sem þurfti til að komast á þá staði sem hugurinn stóð til. GPS og þess háttar notaði Pétur ekki en villtist þó aldrei. Hann las land- ið betur en aðrir og var gætinn ferðamaður. Pétur gat verið sérvitur á sinn hátt, sá t.d. ekki ástæðu til að nota sólarvörn á jöklum sem var kannski ekki besta lausnin í öllum tilvikum. Pétur var virkur í mörgum félögum, m.a. Flug- björgunarsveitinni, Ferðafélaginu og Jöklarannsókna- félaginu auk þess að syngja í Karlakór Reykjavíkur um langt árabil. Innan JÖRFÍ beitti hann sér fyrir byggingu fjallaskála á háfjöllum og átti stærstan þátt í að velja litlum skálum Jöklarannsóknafélagsins stað við Fjallkirkju í Langjökli og á Goðahnjúkum austast á Vatnajökli. Þessir skálar hafa aldrei verið fjölsóttir en skálastæðin eru einhver þau fallegustu sem um get- ur á Íslandi enda þekkti Pétur alla bestu staðina. Pétur var gerður að heiðursfélaga í Jöklarannsóknafélaginu á sextíu ára afmæli þess árið 2010, fyrir framlag til jöklaferða og könnunar. Pétur var prýðilega ritfær og skrifaði meðal annars tvær bækur um gönguleiðir á fjöll hér á landi, þá fyrri í samvinnu við Ara Trausta Guðmundsson. Minningarnar um Pétur ná langt aftur, en honum kynntist ég fyrir rúmum fjórum áratugum, þegar ég fór 17 ára gamall einu sinni sem oftar í ferð með Ferðafé- laginu. Þetta var haustferð inn á Landmannaafrétt. Þar var Pétur meðal þátttakenda. Ég vissi vel af honum enda fóru sögur af þessum manni sem víðar hafði far- ið en aðrir. Pétur var léttur í spori og vel á sig kominn en setti sig ekki yfir nokkurn mann. Ári síðar var leið- in milli Landmannalauga og Álftavatns stikuð í fyrsta sinn. Sem við erum við Brennisteinsöldu á suðurleið segir Pétur: „Þú ættir að ganga í Jöklarannsóknafélag- ið, þá kemstu á jökul.“ Er ekki að orðlengja það að eftir helgina skráði Pétur mig í félagið. Þannig hófst vegferð sem enn er ekki lokið, enda er jöklabakterían ólæknandi. Þegar horft er til baka er vorferðin 2004 að mörgu leiti hugstæð. Pétur var þá rúmlega sjötugur, léttur á sér sem fyrr og lék við hvern sinn fingur. Veður var með eindæmum gott, sól og heiðríkja nánast all- an tímann. Við fórum á Öræfajökul og þá var hæð Hvannadalshnjúks mæld, en þetta var í fysta sinn sem það var gert með nákvæmu GPS tæki. Tilefnið var að 100 ár voru liðin frá því Koch mældi Hnjúkinn með þríhyrningamælingum í upphafi kortlagningar Danska Herforingjaráðsins á Íslandi. Seinna í ferðinni fórum við í Kverkfjöll og nokkrir voru góðviðrisdagarnir í Grímsvötnum. Eins og myndin sem fylgir þessum minningarorðum sýnir kom Pétur æði sólbrunninn af jökli en ekki sló það á ferðagleðina. Það er bjart yfir þessari ferð og sama gildir um minninguna um öðl- inginn Pétur Þorleifsson. Magnús Tumi Guðmundsson 162 JÖKULL No. 71, 2021
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.