Úrval - 01.04.1953, Page 3
12. ÁRGANGUR O REYKJAVlK .2. HEFTI 1953
SKOÐANAKÖNNUN
meðal œskufólks í 14 löndum.
ÍJr „Picture Post“.
Umsögn Bertrands Russel.
ESSI afarskemmtilega könn-
un nær til 24 einstaklinga
frá 14 mismunandi löndum, sem
allir eru á aldrinum 20 til 25
ára. Tilgangur hennar er sá, að
kynnast hugsunarhætti og lífs-
venjum þess hluta ungu kyn-
slóðarinnar, sem var að komast
til vits og ára í síðasta stríði.
Hvert land á þarna yfirleitt tvo
fulltrúa, karl og konu. Hér ægir
saman fólki af hinu sundurleit-
asta tagi og með hin ólíkustu
viðhorf. Auðvitað er ógerlegt að
vita, hversu sannir fulltrúar við-
komandi ungmenni eru fyrir
sína kynslóð, en látum nú svo
vera sem þau séu það.
Hér kynnumst við tveim ger-
ólíkum hópum manna, sem eru
hamingjusamir hvor á sinn hátt.
Annars vegar eru þeir, sem lifa
Enska vikublaðið Picture Post tók
sér fyrir hendur að stofna til eins-
konar alþjóðaskoðanakönnunar með-
al æskufólks.. Utbúinn var mjög ít-
arlegur spurningalisti, sem lagður
var fyrir 24 ungmenni í 14 löndum,
með það fyrir augum að fá sem
gleggsta mynd af hugsunarhætti, á-
hugamálum, viðhorfum og lífskjör-
um þess æskufólks viða um heim
sem nú er að hefja ævistarf sitt.
Spyrjendurnir sem gerðir voru út
af örkinni drógu síðan saman í stutta
frásögn það helzta sem fram kom
i svörum hvers einstaks ungmennis.
Eins og vænta mátti kom margt
fróðlegt og íhugunarvert fram í svör-
unum, enda taldi hið enska vikublað
niðurstöðumar svo merkilegar að það
helgaði eitt hefti sitt þessu efni ein-
göngu. Blaðið fékk brezka rithöf-
undinn og heimspekinginn Bertrand
Russel til að segja álit sitt á könnun-
inni og og niðurstöðum hennar. Fer
grein hans hér á undan sjálfum frá-
sögnunum, en lesendunum skal þó
ráðlagt að lesa frásagnirnar sjálfar
áður en þeir lesa umsögn Russels.