Úrval - 01.04.1953, Síða 5

Úrval - 01.04.1953, Síða 5
SKOÐANAKÖNNUN 3 þetta er aðeins ranghverfa hinnar öfgafullu reglusemi, sem í augum venjulegs Bandaríkja- manns er ímynd allra dyggða. Af hinum mörgu athugasemdum spyrjendanna er sú bezt, sem fjallar um ungu kynslóðina í Ameríku. Þetta fólk hefur, skilst manni, misst bæði hug- rekki og framtak. Æðsta tak- mark þess er að sögn öryggið. Það hvorki hugsar djúpt né hefur sterkar tilfinningar, af því að það gengur með ótta, og framtaksleysi þess gerir hinni atorkusömu eldri kynslóð unnt að leiða það möglunarlaust á blóðvöllinn í næstu heimsstyrj- öld. Þau eru sönn í dyggð sinni, en grunnfærin. Þau gera það samvizkusamlega, sem þau telja skyldu sína, en varast að gera sér ljóst, að það eitt er hvergi nærri nóg til að bjarga landi þeirra og heiminum frá glötun. Og þess vegna leyfa þau Mc- Carthy og hans nótum að ræna sig frelsinu heima fyrir ásamt þróttinum til að standast utan- aðkomandi árás. Þetta getu- leysi til alvarlegrar hugsunar og djúpra tilfinninga kemur einnig í ljós hjá sumum þeim, sem f ramkvæmdu þessa könnun. Annar fulltrúi Englands er önn- um kafin, glöð og góðlynd vagn- þerna, en hinn ungur, lífsglaður aðalsmaður, sem er fátækari en foreldrar hans voru, eins og öll hans stétt, en hefur séð sér hag- kvæmast að snúa sér að land- búnaði. Þessi ungi maður fylg- ist vel með og ber gott skyn á stjórnmál, og hjá honum ber ekki á þeirri beiskju, sem ein- kennir hrörnandi aðalstétt meginlandsins. Könnuðinum virðist hann vera reikull og festulaus. Ég held, að þetta sé vegna þess, að háð hans hafi ekki skilizt. Það er varasamt að draga al- mennar ályktanir, og ég get vel fallizt á, að það unga fólk, sem valið var í könnunina, gefi ekki að öllu leyti rétta mynd af kynslóð sinni. Sumt sé ég þó, að hefur almennt gildi. Aðeins tvö þeirra, sem spurð voru, eru trú- hneigð í alvöru í hinum gamla skilningi. Önnur er sikileysk stúlka af góðum ættum, sem var konungssinni og fasisti. Frændi hennar var ráðherra hjá Mussolini. Hún ákvað að verða kvikmyndaleikkona, þegar hún sá, að harðstjóminni yrði ekki lengra lífs auðið, en hefur varðveitt guðrækni þá og stranga siðaskoðun, sem ein- kenndi hina ítölsku illvirkja. Hin er brazilisk stúlka, alvöru- laus með öllu, sem aðeins bíður þess, að foreldrar hennar gifti hana manni, sem er henni sam- boðinn, hvað auð og metorð snertir. Ég álít, að þessi tvö dæmi leiði í ljós það, sem mér finnst mikilvægt atriði, að fylgj- endur hinna gömlu og viðteknu siðakenninga ómaka sig ekki til að innræta þær dyggðir, sem mannkynið nú þarfnast. Þeir dýrka undirgefni, hugsunarleysi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.