Úrval - 01.04.1953, Page 26

Úrval - 01.04.1953, Page 26
24 ÚRVAL Kaktuseýðingarstöð ríkisins reisti nú skordýrastöð í úthverfi Brisbane og valdi 50 af þessum tegundum til tilrauna. Þar voru skordýrin látin venjast loftslag- inu og tímgast, og síðan var þeim dreift til minni stöðva víðs- vegar á hinu sýkta svæði. Vís- indamenn báru nokkurn ugg í brjósti í sambandi við þessar tilraunir, því að innflutt skordýr gátu orðið meindýr, lagzt á nytjajurtir og spillt þeim. En með sveltitilraunum töldu þeir sig geta girt fyrir þá hættu. Þeir lokuðu skordýrin inni í búri þar sem ekki var neinn þyrni- perukaktus, en hinsvegar alls- konar grænmeti, ávextir og aðr- ar nytjajurtir og trjáplöntur. Engin þessara skordýrategunda lagðist á nytjajurtimar svo að þeim yrði meint af. Við þessar tilraunir reyndist lirfa náttfiðrildisins Cactoblastis cactorum, langskæðust þyrni- perukaktusnum. I maí 1925 kom vísindanefnd heim til Queens- lands frá Argentínu og Uruguay með 2750 egg þessa náttfiðrildis. Fiðrildin, sem úr þeim eggjum komu, voru eftir nokkra mánuði búin að verpa 106.506 eggjaklös- um. Á átján mánuðum ólu skor- dýrafræðingar upp heilan her skordýra í búrum. Eggjaklas- amir — með 70—100 eggjum hver — voru brátt orðnir nærri hálf þriðja milljón. Að dreifa þeim þannig, að lirfurnar, sem úr þeim kæmu, gerðu sem mest tjón, reyndist mikið þolinmæðis- verk. Hver klasi var límdur á örlítinn pappírsbleðil, sem síðan var festur við plöntuna með kaktusþyma. 1 þrjá mánuði á hverju ári vann hópur manna að því að safna eggjum í ræktunarbúrun- um; síðan var þeim dreift um landið. Frá 1925 til 1931 sendi skordýrastöðin frá sér samtals 2750 millj. eggjaklasa. Kostn- aður af þessu varð ekki nema 25.000 pund. Árangurinn eftir fyrstu fjóra mánuði þessarar herferðar var furðulegur. Lirfumar grófu sig inn í þykk, safarík blöðin og jafnvel inn í stöngla og niður í rætur, og kaktusinn gereyddist. á stórum svæðum. Fiðrildin dreifðu sér um æ stærra svæði. Árið sem lauk í júní 1930 var mesta sigurárið í baráttunni við kaktusinn. Það ár hreinsuðu náttfiðrildin 200.000 hektara lands, á móti 12000 árið áður. Það ár hófst einnig ræktun á hinum eyddu svæðum. Eyðingarmáttur lirfunnar var næstum ótrúlegur. Á margra mílna svæði með fram Moonie- ánni var kaktusinn einráður árið 1930. Flestar jarðir voru þar í eyði og þjóðvegir að mestu orðnir ófærir. En tveim árum seinna hafði náttfiðrildislirfan hreinsað 90% þessa svæðis. Eftir tveggja áratuga órækt var nú hægt að hef ja ræktun að nýju. Árið 1936 var endurrækt- unin komin í fullan gang, sáð var grasi til beitar; nýbýli risu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.