Úrval - 01.04.1953, Page 59
MERKUSTU NÝJUNGAR 1 VlSINDUM 1952
5T
í áreómýsín og B12-vítamín jók
varptíðni hjá lélegum varphæn-
um um allt að 57%.
Haldið var áfram tilraunum
til að líkja eftir kolsýrunámi
(fótósýntesu) jurtanna, sem allt
líf á jörðinni byggist raunveru-
lega á. Ef þessar tilraunir til
kolsýrunáms úr lofti á efna-
fræðilegan hátt takast, verður
hægt að framleiða matvæli án
aðstoðar jurtanna, auk þess sem
án efa munu fást mikilvægar
upplýsingar um eðli lífsins.
Bóluefni gegn öllum þrem teg-
undum mænuveikisvíruss var í
fyrsta skipti reynt á börnum
og framkallaði það myndun
vamarefnis í blóði þeirra. Til-
tölulega einföld og ódýr aðferð
til að sannprófa hvort um mænu-
veiki er að ræða, fannst á
árinu.
Stærsti sigur læknavísindanna
á árinu var óefað uppfinning
nýs malaríulyfs, sem bæði fyrir-
byggir smitun og læknar sjúk-
dóminn. Er nú von til þess að
hægt verði að útrýma með öllu
þesum sjúkdómi, sem er mann-
skæðastur allra sjúkdóma, drep-
ur um 3 milliónir manna á ári
hverju og þjáir fjórðung alls
mannkynsins.
Nýtt berklalyf, isoniazid, var
reynt á árinu með góðum ár-
angri. Þó bar nokkuð á að sýkl-
amir yrðu ónæmir fyrir því eft-
ir langvarandi notkun. Fyrstu
tilraunir með það gegn holds-
veiki, lofa einnig góðu. Frá Pól-
landi bárust fréttir um þrjú ný
berklayf. nefnast þau T-40, T-95
og T-195.
300 hjón reyndu nýtt inntöku-
lyf til getnaðarvarna og reynd-
ist 298 hjónum það óbrigðult.
Með kemisku prófi á munn-
vatni tókst að ákveða hvort
barnshafandi kona gekk með
dreng eða stúlku.
Yngingartilraunir vom um
eitt skeið mjög umtalaðar. Kyn-
kirtlar úr ungum öpum voru
græddir í gamla menn til að
yngja þá upp. En yngingar þess-
ar urðu skammvinnar, ágræðsl-
an reyndist ekki varanleg. Nú
hefur tekizt að græða kirtlavefi
í menn, og voru þeir úr fóstr-
um, en ekki fullorðnum dýrum.
Vekur þetta nýja von um að
takast megi að yngja menn.
Gervinýra úr plasti reyndist
ágætlega á nokkram sjúkling-
um, sem þjáðust af bráðum
nýrnasjúkdómi þannig að nýran
voru óstarfhæf um skeið.
Vél sem kemur í staðinn fyrir
hjarta og lungu var í fyrsta
skipti notuð með góðum árangri
á skurðsjúklingi.
m m m
Piparsveinn er maður sem getur engum um kennt nema.
sjálfum sér.
— Edward H. Dreschnaek.