Úrval - 01.09.1953, Page 74
Höfundur greinarinnar „Fyrsta skáldsagan
mín“ í 4. hefti þ. á. ræðir um hraðann
í lifi nútímamannsins.
Hraði lífsins.
Grein úr „The Listener“,
eftir K. C. Hutchinson.
Er G VAR fyrir skömmu stadd-
ur í Dublin og sá þar leikrit.
Aðalpersónan var roskinn kom-
kaupmaður í írsku sveitaþorpi.
Það var margt sem angraði
hann — hjartað var veilt, bróð-
ursonur hans sat á svikráðum
við hann, konunni hans hafði
flogið í hug sú fáránlega hug-
mynd að eyða 10 pundum í sum-
arleyfi. Hraðinn á öllum sviðum
var orðinn honum ofviða, og á
örvæntingarstund barst neyðar-
óp frá innstu hjartarótum hans:
„Mér er sagt að flugvél hafi flog-
ið 1000 mílur á klukkustund. Þaö
finnst mér of hratt!“
Fyrir mig var þetta skemmti-
legasta setningin í öllu leikrit-
inu — kvörtun mannsins var
svo dásamlega f jarskyld högum
hans sjálfs. Og auk þess að vera
brosleg fannst mér hún ágætt
dæmi um það hvernig Irar hafa
lag á að komast að kjarna máls-
ins eftir ótrúlegustu leiðum. Það
duldist engum hvað karlsauður-
inn átti við.
Þessi orð mín ber ekki að
skilja svo, að mér sé sjálfum
mikill hraði á móti skapi. Eg
hef yndi af að aka í bíl með
140 km. hraða á klukkustund
— ef ég sit sjálfur við stýrið og
ef ég á ekki bílinn. Ég hef mikla
ánægju af tækjunum sem þeyta
manni um í Battersea-skemmti-
garðinum. Að borða kvöldverð í
London og hádegisverð í New
York daginn eftir finnst mér
skemmtileg reynsla: ég viður-
kenni að slíku ferðalagi fylgir
ekki sú ánægja, sem er samfara
bílferð t. d. um sveitir Englands
eða Spánar, en það vekur hjá
manni yfirborðslega vitund um
þátttöku í merkilegum viðburði:
það var þesskonar tilfinning,
sem forfeður vorir komust aldr-
ei í kynni við, og því sjálfsagt
að taka henni með þökkum. Nei,
hraðinn er mér þá fyrst á móti
skapi þegar hann knýr hugs-
analíf vort til að fylgja vélun-
um eftir.
Ég er raunar ekki óvilhallur
dómari í þessu máli, því að ég
er 1 hópi þeirra sem eru seinir
að hugsa, þeirra sem alltaf fá
lægsta einkunn á öllum gáfna-
prófum, af því að öll slík próf
— eða að minnsta kosti þau sem