Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 2
Þú ert dómarinn!
Framhald af 3. kápusíðu.
og veru að gefa konunni peninga
sem við áttum.“
„Hvað kemur þetta málinu
við?“ sagði konan. „Ef ég hefði
ekki af fórnfýsi sparað saman
þessa skildinga, þá væru þessir
300 dalir ekki til núna. Það væri
því ósanngjarnt að láta lánar-
drottna mannsins mins taka þá af
mér.“
Ef þú værir dómarinn, mundir
þú þá dæma lánardrottnunum
peningana ?
Dómar réttvísinnar
(sjá 4. kápusíðu).
1. Hæstiréttur Bandaríkjanna
fékk þetta mál til úrskurðar. I
dómi hans segir, að sérhvert fylki
hafi rétt til að ráðstafa eignum
týnds manns eftir að liðinn er
hæfilegur tími frá hvarfi hans.
Mikael tapaði því máli sínu. Um
rétt týnds manns til að endur-
heimta eigur sínar, ef hann kemur
lifandi aftur, sagði rétturinn:
„Stöku sinnum getur komið fyrir
óvenjulegt mál, en stjórnarskrár-
lögin eru ekki altæk frekar en
önnur mannanna verk, og í lang-
flestum tilfellum er réttlætinu án
efa fullnægt."
2. Rétturinn úrskurðaði: Fyrsta
hjónabandinu lauk með skilnaði.
Annað hjónabandið, sem stofnað
var til áður en skilnaður var kom-
inn á, var ógilt af því að mað-
urinn var enn kvæntur. Hinsvegar
er sú sök fyrnd nú. Með því að
annað hjónabandið var frá upp-
hafi ógilt, gerði hann sig ekki
sekan um tvíkvæni, þegar hann
kvæntist í þriðja sinn. Rúdolf var
sýknaður.
3. Dómarinn úrskurðaði, að
með því að maðurinn hefði ekki
skotið raunverulegt dádýr, gæti
hann ekki talizt sekur um veiði-
þjófnað, enda þótt augljóst væri,
að hann hefði ætlað sér að brjóta
lögin. Hann var því sýknaður.
4. 1 dóminum sagði, að pening-
arnir verði að teljast gjöf, og með
því að skuldugur maður hafi ekki
leyfi til að gefa eigur sínar í
stað þess að borga lánardrottn-
um sínum, beri að taka kröfu
lánardrottnanna til greina.
Þýöendur þessa lief tis eru (auk ritstjórans): Sigurjón Björnsson
(S. B.) og Óskar Bergsson (Ö. B.).
(TKVAL — tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ölafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Simi 4954.
Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Sími 1174. Áskriftarverð 70 krónur.
Utgefandi: Steindórsprent h.f.