Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 94

Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 94
92 tíRVAL „Viljið þér ekki koma inn og fá yður sígarettu?" Hún settist og rétti honurn vindlingaveski, og hann þáði sígarettuna einungis af því að hann langaði til að skoða vesk- ið betur. Það var svart og gljáandi, skreytt fögrum dem- öntum. Þegar hann hafði kveikt í sígarettunni, settist hann líka. Hann hafði svo oft látið í ljós álit sitt á reykingum kvenna, að það kom sér vel að kona hans og dóttir sáu ekki til hans núna. Hann hafði lent í rifrildi við þær áður en hann fór að heiman. Pálína hafði haldið því fram, að það væri tízka að reykja, en hann hafði sagt henni skýrt og skorinort, að ef nútímakonan hugsaði minna um hvað væri tízka, en meira um hvað væri sómasam- legt, þá mundi henni vegna bet- ur. Það var einkennilegt hve honum féll vel að reykja með þessari konu. Það var ekki nema eðlilegt að hún reykti, hún var útlendingur. Hann tók upp gullpennann sinn og horfði með sigurgleði á hana þegar hún skrifaði nafn sitt á myndina. Nú mundi hann komast að því hvað hún hét. Bisbee stafaði nafnið í hljóði, áður en hann þorði að segja það upphátt. ,,Er það Gabríella Lesca- boura?“ „Já.“ „Frú?“ Hún kinkaði kolli. ,,Eg þakka yður kærlega fyr- ir, frú Lescaboura,“ sagði hann og stakk myndinni í veskið. „Ég ætla að geyma hana til minningar um mjög ánægjuleg kynni.“ Hann andaði hægt að sér reyknum, og þegar hann hafði blásið honum frá sér aft- ur sagði hann: „Það er ein- kennilegt hvernig fólk kynnist á ferðalögum. Finnst yður það ekki? Menn koma úr öllum átt- um. Þess vegna er það skoðun mín að ferðalög séu þroskandi. Það er hvergi betra tækifæri til að athuga mannlegt eðli en í j árnbrautarlestum. ‘ ‘ „Það er satt,“ sagði hún og horfði út um gluggann um leið og lestin rann af stað. „Maður getur líka skoðað málið frá annarri hlið,“ bætti hann við. „Ferðalög kenna manni hvað heimurinn er lítill, þegar allt kemur til alls. Ég á heima hérna í Ameríku, þér búið í Evrópu, og hérna sitj- um við!“ „Alveg rétt.“ Hún leit vingjarnlega til hans. Bisbee fannst samtalið vera ljómandi skemmtilegt. Hann langaði til að tefja leng- ur, en þegar hann var búinn að reykja sígarettuna, kunni hann ekki við annað en að fara. Um hádegið daginn eftir kom hún inn í veitingavagninn. Þegar hann var á leiðinni út, staðnæmdist hann andartak við borð hennar, bauð henni góð- an dag og lét í ljós von um að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.