Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 64
62
ÚRVAL
snyrtingu heima. En það fór á
annan veg; sá dagur átti eftir
að koma, að hún hafnaði kaup-
tilboði upp á 270 milljónir króna
fyrir stórfyrirtæki sitt, sem nær
til 78 landa.
Nafnið Elísabet Arden valdi
hún af því að henni fannst það
hljóma vel. Hún skrifaði sér
jafnvel sjálfri bréf með því
nafni, til að vita hvernig það
liti út á bréfi. Sem einskonar
syndagjöld fyrir það að hún
sveik hjúkrunarköllun sína, gef-
ur hún að staðaldri mikið fé
til sjúkrahúsa og skóla. Og ekki
hlífir hún sjálfri sér við vinnu:
hálftíma eftir að hún hafði
gengið í heilagt hjónaband, var
hún komin aftur í vinnustofu
sína.
Goya, Max Factor, Ruben-
stein, Arden — öll njóta þessi
nöfn álits meðal kvenfólksins og
í heimi fegrunar og snyrtingar.
En það voru aðrir komnir á
undan. Ungur Korsíkubúi gat-
sleit skóm sínum á randi um
götur Parísar með nýtt ilm-
vatn, sem hann bauð til sölu.
Konan hans hjálpaði til að halda
uppi heimilinu með því að bjóða
heildsölum fjaðrir og kjóla-
skraut. Hjón þessi báru nafnið
Coty.
Þau byrjuðu framleiðslu sína
í einu litlu herbergi; það var í
lok fyrri heimsstyrjaldar. Nú
þekkja allar konur, sem eitt-
hvað nota fegrunarvörur, nafn-
ið Coty.
Svo var það Charles Nessler,
sem byrjaði á því að selja gervi-
augnahár og varð fyrstur
manna til að uppgötva þau gull-
vægu sannindi, að hægt er að
nota gufu til að gera hár hrokk-
ið. Fyrir tæpum aldarf jórðungi
sýndi hann í fyrsta skipti per-
manent hárliðun á konu í viður-
vist margra fagmanna. Áhorf-
endurnir voru vantrúaðir, en
þegar hárið hafði verið þvegið
úr volgu sápuvatni án þess lið-
irnir færu úr því, létu þeir sann-
færast. í fyrstu kostaði perman-
ent hárliðun á annað þúsund
krónur og tók aðgerðin tólf
tíma. Nú eru í Bretlandi einu
24.000 hárgreiðslustofur búnar
permenenttækjum. Þar starfa
130.000 manns að fegrun og
snyrtingu; auk þess geta konur
nú orðið keypt sér allan útbún-
að til að permanentliða hár sitt
heima.
Þannig hefur fegrunariðnað-
urinn vaxið og þróazt. Og jafn-
framt því sem gróðinn og fram-
leiðslan vex, verður hin keypta
fegurð ódýrari.