Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 4

Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 4
2 TJRVAL öll eigum við við erfiðar að- stæður að búa. Ekki er einni styrjöld fyrr lokið en við verð- um að fara að hugsa um og undirbúa þá næstu, sem lítur út fyrir að verða enn hrylli- legri. Enginn vill styrjöld. Öll þráum við frið. Og þó er líf okkar altekið styrjaldarhugsun. Öll elskum við friðinn, sem er svo brynjum klæddur, að við megum okkur vart hræra. Engu er líkara en við séum í grimm- um álagaf jötrum. Við erum eins og fólk, sem vonar, að það sé á leið til suðurs í sólarátt, en kemst þó að raun um, að því miðar sífellt lengra til norðurs, þar sem ísinn þykknar stöðugt og myrkrið umlykur æ þéttar. Hvernig er okkur farið? Sumir segja, að heimurinn kalli yfir sig styrjöld, vegna þess að mað- urinn sé ennþá grimmur í hjarta sínu, hann sé ennþá grimmasta og blóðþyrstasta skepna jarð- arinnar. Ég hygg, að hann sé það. Engu að síður er þessi röksemd úrelt. Nútíma styrjald- ir, sem heil stórveldi heyja, gefa grimmd manna í raun og veru fá tækifæri til útrásar. Herskáum manni, sem þörf er á bardaga, væri meiri fróun í því að koma af stað ryskingum á næstu krá. Staðreyndin er sú, að það er ekki vegna þess, hve maðurinn er herskár, sem hann á í styrjöldum, heldur vegna þess, hve leiðitamur hann er. Hann hlýðnast skipunum. Það er ríkið, sem skipar hon- um fyrir. Ríkið, en ekki fólkið heyr styrjaldir. En okkur mun verða sagt, að ríkin tjái hugi fólksins. Gera þau það? Ekki þegar þau hvetja til styrjald- ar, því að okkur hefur komið saman um, að fólk vilji yfir- leitt frið. Hvergi í nokkru landi hefur fólkið nokkru sinni beðið um kjarnorkustyrjöld, sýkla- hernaðar né aðrar skelfingar. Álits þess hefur aldrei verið leitað. Það eru stjórnarvöldin en ekki fólkið, sem hleypt hafa af stað þessari martröð. Vilja ríkisstjórnirnar þá styrjöld? Ef til vill ekki. En þær eru ekki jafn eindregið andvígar styrj- öldum og óbreyttir borgarar. Þegar á allt er litið, eru ríkis- stjórnirnar skipulögð stríðsleit- un, er semur við annað stríðs- leitandi skipulag. Ríkið byggir á valdi og ofbeldi. Þess verður ekki frekar krafizt af ríki, að það hætti að byggja tilverun sína á valdi, — að það snúi baki við ofbeldinu — en af tígr- isdýri, að það gerist grasbítur. Og ríkið gerir meira en skipu- leggja stríð, það er skipulag, sem hættir á stríð. Innan þess eru ráðuneyti, sem stefna að óhjákvæmilegum árekstrum við hliðstæð ráðuneyti annarra ríkja. Ef flestar af þessum hern- aðarstefnum bæru árangur, myndi hagnaðurinn, sem af því leiddi, ekki bæta ríkinu það fé, sem það hefur varið til vemdar sér. En vítiskvörnin hefur ver- ið sett af stað og hún malar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.