Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 82
80
ÚRVAL,
staði, tíma eða atvik. Hundur,
sem hefur lært að opna hurð,
ruglast oftast ef snerillinn er
fluttur til hinnar handarinnar
á hurðinni. Einnig verður hund-
ur, sem getur opnað hurð, að
læra það að nýju ef hann á
að opna aðra hurð, sem er öðru
vísi að lögun og útliti en hurðin
sem hann lærði á.
Ef maður skiptir um unga í
tveim hreiðrum silfurmáfa fá-
um dögum eftir að þeir komu úr
eggjunum, láta máfarnir sem
ekkert sé, en ef ungarnir eru
eldri en fimm daga, ráðast máf-
arnir á þá og höggva þá til
bana. Er raunar merkilegt, að
máfarnir skuli þekkja unga
sína, sem í augum mannanna
eru allir nákvæmlega eins.
Til eru ýmsar furðulega frá-
sagnir um hæfileika dýra til að
læra, sem eru í algerri mótsögn
við það sem sagt er hér að fram-
an. Þannig er t. d. frásögn
amerísku hjónanna Hayes af
simpansaunganum Vicki, sem
alizt hefur upp á heimili þeirra
og lært ýmsa mannasiði: hann
gengur örna sinna á klósetti,
kveikir ljós og hefur jafnvel
lært að tala! Talkennslan er
nú kapítuli út af fyrir sig.
Þegar Vicki byrjaði að segja
„A,“ lokaði Hayes vörum hans,
eins og þegar maður segir „m,“
og þá sagði Vicki „mamma.“
Honum var nú gefið að borða
í hvert skipti sem hann sagði
mamma. Á sama hátt lærði
hann að segja pabbi. Þriðja
orðið sem hann lærði var ,,cup“
(bolli). Hann átti sjálfur til k
og p hljóðin, og svo var honum
sýndur bolli og orðið ,,cup“ sagt
við hann í hvert skipti sem hann
átti að fá að drekka. Hann
lærði einnig að segja ,,up“
(upp). Svo virtist sem hann
skildi orðin rétt, en þó ekki allt-
af. Þau hjónin segja að hann
skilji 50 orð. Þegar sagt var
við hann: „Hlustaðu á arm-
bandsúrið,11 þá lagði hann eyrað
að úrinu. Þegar sagt var:
„Slökktu ljósið,“ gekk hann að
rofanum og sneri honum. En
ekki fylgir sögunni hvort þess
hefur verið gætt að viðbrögð
simpansans séu ekki annað en
svör við litlum, óafvitandi
hreyfingum fósturforeldranna,
eins og vitað er að mörg cirk-
usdýr gera, eða hvort þau eru
svör við sérstökum raddhreim
eins og oft er hjá hundum.
Líklega er frú Hayes orðin
vonlaus um að Vicki geti lært
að tala af skynsemi. Afrek
Vickis eru — eins og sýningar-
atriði cirkurdýra — árangur-
inn tamningar (dressur); það
er ekki um að ræða neitt sem
dýrið finnur sjálft upp á.
Flest í atferli mannanna er
lært, en fleira er þó sennilega
meðfætt en almennt er álitið.
Erfitt er að fá úr þessu skorið,
því að ekki er hægt að gera
tilraunir á mönnum, halda börn-
um einangruðum árum saman,
eins og hægt er að gera við dýr.
Hinar þrálátu furðusögur um