Úrval - 01.04.1955, Blaðsíða 114
112
TJRVAL
gleraugu af sérstakri gerð, sem
hafa verið mér til mikilla þæg-
inda. Nú var ég svo óheppin
að brjóta þau, og þar sem ó-
mögulegt er að fá slík gleraugu
hér, var ég hálf örvingluð, þar
til ég rakst á nafnspjaldið yð-
ar í dag. Mynduð þér vilja
gera yður það ómak að senda
mér tvenn gleraugu af sömu
gerð og þér gáfuð mér, og láta
mig vita hvað þau kosta?
Með innilegustu kveðjum.
yðar einlæg
Gabriella Lescaboura.
E.s. Ég gleymi aldrei hve vin-
gjarnlegur þér voruð við mig.
Hún hafði ekki gleymt hon-
um! Hérna var sönnunin! Orð-
in stóðu þarna, skrifuð með
djörfu, fallegu rithöndinni
hennar. Hann lagði bréfið á
borðið, og án þess að sleppa
af því augunum, tók hann
myndina upp úr veskinu, og
lagði hana við hliðina á bréf-
inu. svona skrifaði prinsessa
nafn sitt! Hann gat ekki lýst
þeirri sælu, sem gagntók hann,
þegar hann sá nafn hennar aft-
ur. Hann heyrði hjarta sitt slá,
og það sló nú hraðar en áður.
„Hérna er sönnunin,“ muldr-
aði hann. ,,Það er eins og ég
hef alltaf sagt. Veruleikinn er
furðulegri en skáldskapurinn.“
Enn einu sinni höfðu forlögin
gefið honum tækifæri til að
verða henni að liði. Ef hún
vissi, hve honum var það mikið
gleðiefni! Upp frá þessari
stundu skyldi hann vera reiðu-
búinn að hjálpa henni, hvenær
sem þess gerðist þörf, og hvar
sem hún væri stödd. Hann skyldi
alltaf bíða eftir boðinu frá
henni, alltaf reiðubúinn, hún
gat beðið hann um hvað sem
var, það skyldi aldrei standa á
William P. Bisbee, ef til vill
stærsta gimsteinasalanum í
fylkinu. Hann skyldi hjálpa
henni með ráðum og dáð með-
an hann drægi andann!
Hún var eina manneskjan,
sem hafði skilið hann. Án henn-
ar hefði líf hans verið auðn og
tóm. Tár rann niður vanga
hans. Hann þerraði tárið. Það
var ekki sæmandi að maður
eins og hann færi að gráta.
Hann mátti ekki láta bugast.
Hann herti sig upp og sat keik-
ur í stólnum. Honum fannst
sem vindubrú hefði verið hleypt
niður yfir hallarsíkið, hin vold-
ugu hlið lukust upp og lúðr-
arnir gullu. I næstu andrá stóð
hann hjá skrifborðinu og lyfti
pappírshnífnum með tígulegri
hreyfingu.
„Yðar tign!“