Úrval - 01.04.1955, Page 12

Úrval - 01.04.1955, Page 12
10 ÚRVAL hún orðin uggvænlega áberandi. Fólk kann að vera hreinlegra, snyrtilegra og jafnvel hóglátara en áður var títt, en það virðist einnig vera heimskara, innan- tómara, eins og skapfestan sé tekin að þverra. Þjóðfélagið get- ur boðið okkur undur og dá- semdir tæknilegra framfara, en mistekizt þó herfilega, af því að þar býr fólk, sem er að glata áhuganum, ímyndunaraflinu, gleðinni og lotningunni, en er fullt leiðinda og drunga og lifir meira eftir lunderni þræls en frjálsborins manns. í þessu, í þróun allra þessara verkfæra valdsins, sem ógna sjálfu mann- gildinu, er hættan fólgin. Við verðum að horfast í augu við hana, meðan skyn okkar er enn nógu glöggt til að þekkja hana. Að lokum vil ég biðja ykk- ur að minnast þess, að ætlun mín var ekki að bregða upp full- kominni, alhliða mynd af nútíð- inni. Öldin okkar ber í skauti sínu margt, sem nýstárlegt er og gott. Ég hefi af ásettu ráði dvalið við þá þætti hennar, sem hætta stafar af. Við gerum okk- ur ekki þær grillur að halda, að við séum fórnarlömb ein- hverra samsærisafla, einhverra vondra manna, sem sökina eiga. Það er vélaverk valdsins, sem komið er út í öfgar, og það svo mjög, að ýmsir ágætir menn hafa alveg sokkið á kaf í hið flókna skipulag, og hafa þar af leiðandi gleymt því, að það er skipulagið, sem á að þjóna manninum. Þeir eru nú svo önn- um kafnir við að prófa, mæla og sundurgreina baðvatnið, að þeir muna ekki eftir því, að þeir hentu barninu út um gluggann. Mildum stjórnleysingjum er bæði ljúft og skylt að minna menn á þvílík glappaskot. S, B. þýddi. . . . 1 ÞETTA SKIPTI. Á farþegaskipinu var roskinn háseti, sem stundum var úfinn í skapi og var þá lítið gefinn fyrir aö snyrta orð sín. Einu sinni var öldruð etaðsráðsfrú fai'þegi með skipinu. Hún kom upp i brúna og gaf sig á tal við hinn aldna háseta, sem stóð þar við stýrið. Hásetinn svaraði fávislegum spurningum frúarinnar einsatkvæðisorðum og þegar honum fannst nóg komið, sagði hann henni umbúðalaust að fara til and............... Etaðsráðsfrúin hrökklaðist burtu, en skipstjórinn, sem hafði heyrt orðaskiptin inn til sín, skipaði hásetanum að fara niður og biðja frúna afsökunar. Ekki varð hjá því komizt að hlýða skipun skipstjórans. Há- setinn fór niður, opnaði hurðina á reyksalnum og kallaði inn: „Hvaða kona var það, sem ég sagði að fara til and............?" „Það var ég,“ sagði etaðsráðsfrúin þykkjuþung. „Þú getur sloppið við að fara í þetta skipti," hreyttí hann úr sér og skellti hurðinni aftur. — Det Hele.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.