Úrval - 01.04.1955, Side 59

Úrval - 01.04.1955, Side 59
1 STUTTU MÁLI 57 ræða. Hægt var að rispa með þeim allt, jafnvel aðra demanta, og er það fyrsta efnið, tilbúið af manna höndum, sem rispað getur demanta. Dr. Strong telur, að of fljótt sé að álykta, að brátt verði hægt að búa til demanta nægilega stóra og góða til þess að nota þá í gimsteina. En verði hægt að lækka framleiðslukostnaðinn frá því sem nú er, megi vænta þess að brátt verði farið að nota gervidemanta í iðnaði, til skurð- ar og slípunar. — Discovery. Tæld ti! að eyða hörundsflúri. Margir þeirra, sem hafa látið undan þeirri merkilegu löngun að láta flúra hörund sitt með allskonar myndum, hafa síðar meir átt þá ósk heitasta að geta losnað aftur við skrautið. En hingað til hefur ekki verið unnt að verða við þeim óskum. Margar aðferðir hafa verið reyndar, en engin tekizt. Þangað til fyrir tveim árum að nýtt tæki var reynt í Ameríku. Með bví er hægt að fjarlægja hör- undsflúr án nokkurra óþæginda. Síðan hafa þúsundir Ameríku- manna látið eyða af sér hör- undsflúri, örum og öðrum hör- undslýtum á líkama, höndum og andliti. Danskur læknir, sérfræðingur í húðsjúkdómum, Tage Jensen dr. med., hefur reynt þetta tæki með góðum árangri. Blaðamað- ur frá Politiken átti nýlega tal við lækninn og fékk tækifæri til að horfa á hann eyða hörunds- flúri. Hörundsflúr er fagurblátt á að líta, eins og kunnugt er, segir dr. Jensen, en það er sjón- hverfing. Þegar hörundsflúrið er fjarlægt má sjá, að myndirnar eru gerðar með litlum, svörtum kolögnum. Oftast mun vera notað teikniblek, kostur þess er sá, að það hefur ekki ertandi áhrif á húðina og veldur ekki bólgu. Ástæðan til þess hve erfitt hefur reynzt að fjarlægja hör- undsflúr er sú, að myndirnar eru gerðar djúpt í húðinni. Húð- in skiptist aðallega í tvö lög, yfirhúð og leðurhúð. Milli þeirra er slímlag, en undir leðurhúðinni er fitulag. Hörundsflúrið er djúpt í leðurhúðinni. Það var einn af sjúklingum dr. Jensens, sem fór með blaða- manninn á fund læknisins. Hann hafði fyrir löngu látið flúra handarbök sín svo, að varla var nokkur blettur á jieim óflúrað- ur. Nú var hann fyrir löngu orð- inn dauðleiður á þessu, og þegar hann frétti um hið nýja tæki, fór hann til dr. Jensens. Og nú var hann laus við mest af flúr- inu. Aðgerðin er sársaukalaus. Svæðið er staðdeyft og svo kem- ur læknirinn með tæki sitt, sein líkist einna helzt tannbor, sem tannlæknar nota til að bora úr skemmdum tönnum. Þessi hár- fíni bor tætir upp húðina með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.