Úrval - 01.04.1955, Page 60
58
ÚRVAL
2000 snúningum á mínútu og
eftir skamma stund koma hinar
svörtu agnir hörundsflúrsins í
ljós. Borinn tætir burt flestar
agnirnar, en þær sem eftir verða
tínir læknirinn búrtu með töng
eða skærum. Það tekur um hálf-
tíma að eyða lítilli mynd. Sárið,
sem eftir er, grær fljótt og læt-
ur ekki eftir sig ör. Sem stendur
er nú unnið að því að endurbæta
hina amerísku aðferð. Danskt
fyrirtæki vinnur að því að búa
til tæki, sem samtímis deyfir
húðina með því að frysta hana.
Við frystinguna harðnar húðin
og verður þá auðveldara að bora
hana upp og borinn veldur minni
skemmdum á húðvefjum. Þetta
nýja tæki mun verða hægt að
nota til að eyða örum í andliti
eftir fílapensa og öðrum ójöfn-
um í andlitshúðinni, sem eru til
lýta. Verður því hér um mikla
framför í húðlækningum að
ræða.
— Politiken.
Erfiðir sýklar.
„Svo til allar tegundir graftar-
sýkla (staphylococci), sem valda
ígerðum í sjúkrahúsum, eru ó-
næmir fyrir penisillíni. Nærri
þrír fjórðu hlutar eru ónæmir
fyrir streptomycíni, aureomyc-
íni og terramycíni." Þetta stóð
nýlega í forustugrein í enska
læknablaðinu The Lancet. Vax-
andi ónæmi ýmissa sýkla,
sérílagi í sjúkrahúsum, hefur
orðið tilefni til þess, að undan-
□-
farna mánuði hafa margir lát-
ið í ljós ugg um framtíðina í
þessu efni.
Chester W. Howe, læknir í
Boston, segir í grein í The New
England Journal of Medicine,
að svo virðist, sem ígerðum eft-
ir uppskurði fari fjölgandi
vegna víðtækrar notkunarsýkla-
lyfja í sjúkrahúsum. Ónæm
sýklaafbrigði, segir hann, leysa
af hólmi næmari sýklagróður,
sem starfslið sjúkrahúsanna ber
með sér, einkum í nefslími. Einn-
ig getur verið, að skurðlæknar
treysti um of á sýklalyfin og
sýni ef til vill minni árvekni
um hreinlæti og dauðhreinsun
í sambandi við aðgerðirnar. Til-
raunir hafa verið gerðar í
nokkrum sjúkrahúsum með að
dauðhreinsa nasir hjúkrunar-
fólks og lækna með lyfjum, sem
ekki eru almennt notuð, og hafa
þær borið þann árangur, að
ígerðum eftir uppskurði hefur
fækkað verulega.
I aðvörun frá Læknafélagi
New Yorkfylkis segir: „Ef nú-
verandi ofnotkun sýklalyfja
heldur áfram, getur farið svo,
að brátt hafi læknar fárra eða
engra kosta völ í baráttunni við
graftarsýklana." The Lancet
styður þá skoðun, að rétta leið-
in til að sigrast á þessum harð-
geru sýklum kunni að vera, að
nota fleiri en eina tegund lyfja,
en sú aðferð hefur gefizt vel
í baráttunni við berklana.
— Scientific American.
□1