Úrval - 01.04.1955, Síða 69

Úrval - 01.04.1955, Síða 69
TRÚIÐ EKKI YKKAR EIGIN AUGUM! 67 sýnist lóðrétta strikið vera lengra. Á sama hátt má sannprófa, að mannsaugað hefur tilhneig- ingu til að ofmeta stærð efri helmings myndar. Þetta má sjá t. d. af tölustafnum átta hér við hliðina. Efri og neðri slaufan sýnast jafnstór- ar — en skoði maður stafinn á höfði, sér maður strax, að svo er ekki. Það er unnið gegn sjón- hverfingunni með því að hafa efri slaufuna, sem auganu hætt- ir til að ofmeta, minni en þá neðri. Sama fyrirbrigði má sjá á bókstöfunum B, S og Z. Úr því að við erum að tala um bókstafi, má drepa á önnur sér- kenni þeirra. Þegar auglýsinga- teiknari ætlar að teikna stafa- röð, byrjar hann á því að gera tvö samsíða blýantsstrik, sem eiga að takmarka stærð staf- anna. Ef hann léti nú alla staf- ina vera innan þessara tveggja strika, myndu stafir, sem að ofan snerta aðeins strikið, eins og t. d. A, O og S, sýnast lægri en þeir stafir, sem í allri breidd sinni nema við strikið, eins og t. d. E, F, R, Z o.fl. Þessvegna teiknar hann fyrrnefndu stafina þannig, að þeir nái aðeins upp fyrir strikið. Sama aðferð er notuð við neðra strikið þegar um er að ræða stafina N og V. Þegar Rómverjar — og raun- ar einnig Grikkir — meytluðu hinar stóru áletranir sínar á háa veggi með fögrum bókstöf- um, notfærðu þeir sér aðra sjón- hverfingu. Stafirnir í efstu lín- unni voru hafðir stærstir, en síðan fóru þeir ögn minnkandi eftir því sem neðar dró. Þegar áletrunin var skoðuð neðan frá, hurfu rúmvíddar (perspektiv) áhrifin og allir stafirnir virtust vera jafnstórir. Og með þessu erum við komin inn á mjög mikilvægan þátt í sögu sjónhverf inganna: hina fölsku rúmvídd. Á endurreisnartímabilinu, þegar menn höfðu uppgötvað rúmvíddina og áhrif hennar, beittu menn oft brögðum til að auka áhrif rúmskynjunarinnar. Bramante, einn af fremstu byggingarmeisturum endur- reisnartímans, byggði kirkju, S. Maria presso S. Satiro. Á bak við altarið gefur sýn inn í stór- an, hvelfdan sal. En ætli maður þangað inn, uppgötvar maður, að salurinn er aðeins 1 metri á dýpt. En með flötum hálfsúl- um, múrbrúnum og bogum, sem fara minnkandi eftir því sem aftar dregur, hefur Bramante tekizt að blekkja augu okkar — fengið okkur til að trúa á hina fölsku rúmvídd. í sögu byggingarlistarinnar eru mörg dæmi af þessu tagi: 1 Vatíkaninu hefur Bernini ark- ítekt látið gera stigann „Scala Regia“ þannig, að hann bæði mjókkar og lækkar eftir því sem ofar dregur, og standi maður við neðsta þrepið, finnst manni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.