Úrval - 01.04.1955, Page 101

Úrval - 01.04.1955, Page 101
PRINSESSAN HANS BISBEE 99 þeirra til skemmtana kemur ekki hvað sízt í ljós í skemmti- ferðum þeirra til Bæheims." „Kemur heima,“ sagði Bisbee og kinkaði kolli. „Þau eru vön að fara þangað!“ „Sé það rétt sem altalað er, þá stafar hrifning prinsins af Lido af því, að meðal gestanna er kunn dansmey frá París. Það má gera ráð fyrir að prinsess- unni hafi gramist þetta mjög. Hún var eins og ávallt umkringd hópi aðdáenda, og hneigð henn- ar til tilbreytingar að því er snertir elskhuga kom greinilega í ljós, því að fjórir af aðdá- endunum voru alltaf á hælunum á henni og afbrýðisemi þeirra innbyrðis fór engan veginn dult. Einn af þessum fjórum getur rakið ætt sína til spönsku kon- ungsfjölskyldunnar, annar er brezki gúmmíauðmaðurinn Wapshott lávarður, þriðji er frægur amerískur kvikmynda- leikari, og hinn fjórði T. Perci- val Begg frá New York og Santa Barbara. Það kann að vera hrein til- viljun að Mon Plaisir — þessi undurfagra eign, sem prinsess- an valdi sér fyrir bústað í Santa Barbara — stendur við hliðina á húsi Beggs. Hitt er staðreynd, að ekki var liðinn nema hálfur mánuður frá komu prinsess- unnar, þegar hin sívökula Vida Begg, sem talin er vera sex ár- um eldri en pólóleikarinn, mað- ur hennar, fór með hann rak- leitt til Honolulu, þar sem hann sat í ólund allan veturinn, eftir því sem vér höfum frétt.“ Bisbee var hættur að ganga um gólf. „Hvernig hefur þessi óþverra snepill komist inn á heimili mitt?“ spurði hann. „Ég keypti blaðið til þess að fá að vita hverskonar náungi þessi Thresher er, sem Alice Murchison ætlar að giftast. Það lítur út fyrir að hann hafi verið trúlofaður . ...“ En Bisbee hafði engann á- huga á Thersher. „Ég hlusta ekki á eitt einasta orð í þessu blaði!“ „Skrifa þeir nokkuð meira um þessa konu, sem hann pabbi þinn hefur krækt í? Góða, lestu það.“ „Nei, ég harðbanna það!“ hrópaði Bisbee. „Hyskið lýgur! Ég er alveg hissa á henni móð- ur þinni að hleypa svona snepli inn á heimilið.“ Hann sneri sér að Pálínu. „Fáðu mér blaðið!“ „Anzaðu honum ekki,“ sagði móðir hennar ákveðin. „Láttu mig fá blaðið, elskan mín.“ Frú Bisbee fékk blaðið hjá dótturinni og leit yfir það. „Það er sem ég segi,“ tautaði hún, „þetta er meiri drósin.“ Hérna stendur, að meðan Begg var í Honolulu með veslings konunni sinni, hafi prinsessan verið að daðra við hóp af gift- um mönnum. Það er fullyrt, að ungur liðsforingi hafi framið sjálfsmorð hennar vegna og að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.