Úrval - 01.03.1968, Qupperneq 56

Úrval - 01.03.1968, Qupperneq 56
54 ÚRVAL áhöfnum, en hver áhöfn telur 4 flugmenn og 6 flugfreyjur. Löngu áður en við lögðum af stað hefur starfslið á jörðu niðri, en það telur 286 manns og er dreift hringinn í kringum hnöttinn, verið önnum kafið, til þess að tryggja öruggt flug okkar. Hádegismatm-inn, sem verður brátt borinn fyrir okkur, var valinn úr 201 matseðli fjrrir næstum viku, af tölvu, er velur mat, sem hentar loftslaginu hverju sinni, og gætir þess um leið, að jafnan séu breytilegir réttir á boðstólum frá degi til dags í þeim 130 þotum sem flugfélagið hefur í þjónustu sinni. Ég er að velta öllum þessum furð- um fyrir mér rétt fyrir hádegisverð- inn, þegar ég kem skyndilega auga marglitan gimstein, sem hvílir í glitrandi umgerð sævarins fyrir neðan mig: Honolulu. Við lendum á flugvellinum, farþegarnir flýta sér út og nýir bætast við ásamt flutn- ingi. Og hið síðasta, sem ég sé, þeg- ar við geysumst af stað aftur, er flugvallarstjóri Pan American, er hann lítur af úrinu sínu, sem hann hafði verið að athuga. Hefðum við tafizt meira en 60 sekúndur, hefði hann orðið að gefa skrifstofunni í New York skýrslu um töfina. Hefði verið um 15 mínútna töf að ræða, hefði hann orðið að senda þeim ýt- arlega frásögn og taka jafnframt fram , hvaða ráðstafanir hefðu nú verið gerðar til þess að hindra slík- ar tafir í framtíðinni. Og hver er svo ástæðan fyrir allri þessari smámunasemi, hvað tím- ann snertir? Það má segja, að „Clipper Two“ líkist helzt vagnin- um hennar Öskubusku á 9000 mílna leiðinni milli Lundúna og Tokyo. Flugvélin verður að komast milli þessara staða innan vissra tímatak- markana. Þar eru í gildi mjög strangar reglur, sem settar hafa verið til þess að vinna gegn hvers kyns óhóflegum hávaða í borgun- um.. Það er ekki leyfilegt að lenda þotum í Lundúnum fyrir klukkan 6 að morgni, og þær mega ekki hefja sig til flugs í Tokyo eftir klukkan 11 að kvöldi. Flugáætlun er mjög naum, hvað tímatakmörk snertir, og því má ekki miklu skeika. AÐEINS TITRINGUR Flugfreyjurnar flýta sér að bera fram hádegisverðinn, losa sig síðan við matarbakkana og annað dót og reyra allt vandlega niður í flug- vélinni, sem reyrt verður, því að þær vita, að bráðlega mun veðrið breytast. Veturinn 1962—63 breytti „þotuloftstraumurinn“ (sterkur vindur, sem þýtur austur á bóginn í um 30.000 feta hæð) stefnu yfir vesturhluta Kyrrahafsins, án þess að unnt væri að finna skýringu á því fyrirbrigði. Hann rak á undan sér suður á bóginn geysimikla loft- strauma, sem koma æðandi utan af hinum endalausu sléttum Síberíu og Mongólíu. Hinir ríkjandi vindar Suður-Asíu, er stefna í norður, reka sig á Himalajafjallgarðinn líkt og á stíflugarð og magnast þar. Síðan beygja þeir austur á bóginn með- fram risafjallgarði þessum í leit að einhverri smugu. Hún finnst ekki fyrr en úti við ströndina, og því þjóta vindarnir út yfir Austur- Kínahafið hátt í lofti .... eða með öðrum orðum beint í veg fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.