Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 82
80
ÚRVAL
helzta orsök hinna tíðu og slæmu
bifhjólaslysa sé einfaldlega reynslu-
skortur ökumannanna. í Minnesota-
fylki fór fram athugun á 121 slíku
slysi, og kom þá í ljós, að um
algeran reynsluskort var að ræða,
hvað fimmtung slysanna snerti. Var
þar um að ræða ökumenn, sem voru
að aka í fyrsta eða annað skipti,
þegar slysið bar að höndum. Við
Norður-Karólínuháskóla fór fram
athugun á 53 slíkum slysum, og
kom þá í ljós, að 30% fórnardýranna
höfðu ekið í minna en einn mánuð,
þegar slysið bar að höndum.
Um þetta segir Ted Hodgdon á
þessa leið, en hann er kunnur bif-
hjólasali og formaður sambands
framleiðenda, er framleiða bifhjól,
skellinöðrur og skyldar vöruteg-
undir: „Maður, sem ekur bifreið,
heldur að hann hljóti því að geta
ekið bifhjóli. En það getur hann
ekki án sérstakrar kennslu og
þjálfunar þrátt fyrir reynslu sína
sem bifreiðarstjóri. Til þess að svo
megi verða, verður hann að hljóta
rétta kennslu og þjálfun. Bifhjól er
allt öðru vísi farartæki en bifreið,
og akstur þess krefst mjög ólíkra
viðbragða ökumannsins og alger-
lega ólíks mats hans á því, hvað
teljast megi öruggur akstur.“ En
samt er það svo, að í 29 fylkjum
Bandaríkjanna veitir venjulegt bif-
reiðaökuskírteini hverjum sem er
rétt til þess að aka bifhjóli.
Þeir, sem leigja út bifhjól, brjóta
freklega af sér á þessu sviði. Venju-
lega er hægt að leigja bifhjól með
því einu að sýna venjulegt bifreiða-
ökuskírteini. f Denver tók ungur
maður bifhjól á leigu á bensínaf-
greiðslustöð. Honum var bara sagt,
hvernig hann ætti að setja það í
gang og stöðva það. Þegar hann
spurði, hvort hann mætti aka um
svæðið umhverfis stöðina til þess
að venjast bifhjólinu svolítið, áð-
ur en hann héldi út í umferðina,
hlaut hann þetta svar: „Nei, fjand-
inn hafi það! Þú værir viss með að
aka beint á einhverja bensíndæl-
una.“ '
Unglingur hefur ýmsa möguleika
á að fá þjálfun í akstri og með-
ferð bifreiðar. En það er næstum
því algerlega ómögulegt að fá þá
kennslu og þjálfun, sem þarf til
þess að tryggja sig sem bezt gegn
slysum í bifhjóla- og skellinöðru-
akstri. Margir gagnfræðaskólar
bjóða upp á bifreiðaakstursnámskeið
fyrir nemendur sína, en enginn
gagnfræðaskóli býður upp á fram-
bærilegt námskeið, hvað bifhjóla-
og skellinöðruakstur snertir. Þetta
er álit dr. Thomas Seals, sem er
starfsmaður fræðslunefndar, er
vinnur að auknu umferðaröryggi á
vegum Fræðslunefndar Bandaríkj-
anna. Almennir bifhjólaökuskólar
eru mjög sjaldgæfir. Einn bifhjóla-
sali áiítur, að það sé aðeins um að
ræða 6 slíka skóla í Bandaríkjunum.
Og fáir foreldrar geta kennt börn-
um sínum nokkuð um bifhjólaakst-
ur.
Það er því augljóst mál, að sú
framkvæmd, sem mest er þörf
fyrir á þessu sviði, er löggjöf um
sérstök bifhjólaökuskírteini. Um-
ferðaröryggisstofnun Bandaríkj-
anna, sem er deild í hinu nýja
Flutningamálaráðuneyti Bandaríkj -
anna, gaf nýlega út reglur um viss-