Úrval - 01.04.1968, Page 12
10
ÚRVAL
dómgreind." Sem betur fer lét hann
þá ákæru ekkert á sig fá, en hélt
ótrauður áfram.
Það þarf kímnigáfu til þess að
geta viðurkennt mistök sín — og þá
vizku öðiast menn alltof oft ekki
fyrr en á gamals aldri. Svo látum
við þessum hugleiðingum lokið með
því að vitna í orð Emersons: „Af-
greiddu hvern dag að kvöldi. Þú
gerðir þitt bezta. Einhverjar vit-
leysur og skyssur hafa sjálfsagt kom-
ið fyrir; gleymdu þeim bara eins
fljótt og þú getur. Á morgun byrj-
ar nýr dagur; byrja þú hann vel og
friðsamlega, og í of góðu skapi til
þess að láta gömlu vitleysurnar í-
þyngja þér.“
Máttur tízkunnar.
Nú er svo mikið um breytingar á klæðnaði rómversk-kaþólskra
nunna, að meðlimir kirkjunnar eiga jafnvel erfitt með að fylgjast
með öllum þeim breytingum. 1 fyrra var fulltrúi á kaþólsku uppeldis-
málaþingi i Chicago að fara í lyftu upp til herbergis síns í gistihúsi
þvi, sem hann bjó á. 1 lyftunni var hópur kvenna, klæddur einkennis-
búningi, sem hann þekkti ekki strax. „Afsakið," sagði hann við þær,
„en ég þekki ekki búning reglu ykkar. Hvaða reglu tilheyrið þið?“
Ungu konurnar virtust alveg steinhissa. Siðan svaraði ein þeirra:
,,Ó, við erum flugfreyjur!"
Religious News Service
Vonin er draumur vakandi manns.
Matthew Prior
Takið eftir!
Utan á umslagi bréfs, sem auglýsingafyrirtæki eitt i Florida sendir
út um hvippinn og hvappinn, getur að líta þessa orðsendingu: „AÐ-
VÖRUN! Ef þér kastið þessu bréfi óopnuðu í bréfakörfuna, mun
vatnshylki í þvi rifna og vatnið úr því mun streyima yfir mulda
kyrkislöngu, sem er í bréfinu. Þá lifnar hún við og skriður út úr
umslaginu og VEFUR SIG UTAN UM YÐUR OG KREMUR YÐUR
TIL BANA!“
Þetta eru vissulega framfarir frá hinni fátæklegu og gamalkunnu
orðsendingu „ÁRlÐANDI — ÞYÐINGARMIKIL ORÐSENDING
INNAN í.“
Horizons