Úrval - 01.04.1968, Síða 17
DÝRGRIPUM MARAISHVERFISINS ....
15
sem allar þýðingarmiklar bygging-
ar voru skýrt merktar.
Þetta kort var síðan gefið út og
selt til þess að afla þessari starf-
semi fjár. Það var einnig gefið Deild
sögulegra minja og borgarembættis-
mönnum, sem nota það nú við störf
sín á þessu sviði.
í árslok 1963 ákváðu þeir Raude
og félagar hans að skipuleggja starf-
semi sína á varanlegri hátt. Það var
orðið mjög aðkallandi fyrir þá að
stofna eins konar miðstöð fyrir alla
þessa starfsemi. Borgarstjórnin
leigði samtökunum 2 hús frá 16.
öld í Maraishverfinu. Þau voru í
eign borgarinnar, og samtökin
fengu leigusamning til 30 ára á
mjög lágri leigu. Einu skilmálarn-
ir voru þeir, að samtökin sæju sjálf
um að laga húsin og koma þeim í
það ásigkomulag, er líktist sem
mest hinu forna útliti þeirra. Og
því hafa hópar ungra manna og
kvenna unnið að þessari lagfær-
ingu allt frá því í aprílmánuði 1964.
Þetta unga fólk hefur rifið niður
skilrúm, flutt burt alls kyns rusl og
rifið upp flísar. Þegar verki þessu
er lokið, munu samtökin hafa feng-
ið þarna rúmt skrifstofuhúsnæði,
en einnig fundarsali og sali og her-
bergi fyrir sýningar og skjalasöfn.
Sjálfboðaliðamir eru flestir ógift-
ir og á aldrinum 22—30 ára. Þar á
meðal eru verkfræðingar, endur-
skoðendur, ritarar, sölumenn og op-
inberir embættismenn.
Sumir gengu í upphafi í samtök-
in til þess að fá ókeypis miða á
listahátíðina, t. d. Edouard Basset,
vinnuhagræðingarsérfræðingur, sem
sér um starf það, sem unnið er við
Sjálfboöaliðar að lagfœra gyllingu
á loftbjálkum.