Úrval - 01.04.1968, Side 21
HVAÐ ERU PERSÓNUTÖFRAR?
19
af innri sálarró, heldur en af æsku-
blóma eða yndisþokka. Hver sá,
sem er þessum hæfileikum búinn
er meira heldur en bara vinsæll,
hann hefur bætandi áhrif á um-
hverfi sitt.
Þegar öllu er á botninn hvolft, má
segja, að persónutöfrar séu ekkert
annað en áhrifamikil framkoma, sem
tekur tillit til annarra og gefur þeim
sjálfsvirðingu og stolt.
Persónutöfrar nálgast helzt ástina
í því, að þeir njóta sín án þvingun-
ar, og varpa frá sér geislum eins og
vaxandi dagsbirta. Þeir veiða mann
sjálfir afvopnaðir. Þeir höggva án
þess að særa, þeir vinna stríð án
þess nokkur slasist — þó að alltaf
sé auðvitað hætt við því, að ein-
hverjir falli.
í vopnabúri mannsins eru per-
sónutöfrar sem álaga-ör, létt og fín-
gerð eins og söngfugl. En þeir eru
villandi að einu leyti — eins og
kímnigáfan — ef þú heldur, að þú
hafir þá til að bera, hefur þú þá
að öllum líkindum ekki.
Fótbrotin kona vildi fana í heimsókn til ættingja sinna í Detroit,
en hún bjó á Kyrrahafsströndinni. Hún vildi fara flugieiðis, en fót-
urinn var í fyrirferðarmiklum gipsumbúðum og útskýrði hún. vanda-
mál sitt fyrir afgreiðslumanni flugfélagsins. Hann lét í ljósi samúð
sína og sagði, að hún yrði að fara á fyrsta farrými og mundi líklega
þurfa tvö sæti.
Síðan bætti hann við i huggunarrómi: „Eh ef þér farið í miðri viku,
getur fóturinn yðar flogið á fjölskyldufarmiða.“
Mike Davis
Fyrir nokkrum árum sat amerískur kardínáli við hlið Gyðinga-
prófasts við opinberan kvöldverð. „Hvenær má ég fá þá ánægju að
rétta yður svínakjöt?" sagði kardinálinn.
Þá svaraði Gyðingaprófasturinn: „1 brúðkaupi yðar hágöfgi." (I
augum rétttrúaðra Gyðinga er svínakjöl óhrein fæða. Þýð.)
Hinn frægi sælkeri Brillat-Savarin bar eitt sinn fram þessa eftir-
tektaverðu spurningu: „Þið, fyrstu foreldrar mannkynsins, sem
steyptuð ykkur í glötun fyrir eitt epli ......... hvað hefðuð þið gert
fyrir kalkún, tilreiddan á lystilegan hátt?“ ;
Sidney Harris.